SagaPro

(4 dóma viðskiptavina)

4.966 kr.

Þú færð 20% afslátt ef þú gerist áskrifandi

Smelltu hér til að kynna þér málið

SagaPro er oft tekið til þess að:

  • Bæta svefn með því að fækka salernisferðum á nóttu
  • Fækka salernisferðum í löngum göngum, hjólreiðum, golfi og skíðum
  • Bæta lífsgæði hjá einstaklingum með ofvirka þvagblöðru
  • Getur dregið úr bólgum
+


SagaPro – Fæðubótarefni

Rannsóknir benda til að SagaPro dragi úr tíðni þvagláta hjá þeim sem eru með litla eða minnkaða blöðrurýmd og eru notendur á öllum aldri og endurspegla rúmlega 1% af íslensku þjóðinni sem nota fæðubótarefnið daglega. Ef þú pissar 6-8 sinnum á dag er líklegt að þú sért með ofvirka þvagblöðru.

SagaPro er íslensk náttúruvara sem inniheldur handtínda íslenska hvönn. Hvönn hefur verið ein merkasta lækningajurtin í Norður-Evrópu í mörg hundruð ár. Virka efnið í vörunni er unnið úr íslensku ætihvannarlaufi og hefur hún verið rannsökuð í yfir 25 ár af vísindamönnum Saga Natura. Lauf ætihvannarinnar eini hluti plöntunnar sem hefur sýnt bein áhrif af fækkun þvagláta. Þess má geta að varan hefur engar aukaverkanir.

Fækkaðu salernisferðunum

Með því að taka 1-2 töflur af SagaPro fyrir svefninn er hægt að koma í veg fyrir eða fækka salernisferðum að nóttu til. Tíð þvaglát valda jafnan mikilli truflun á nætursvefni og finna margir mun á gæðum svefnsins eftir að inntaka hefst. Jafnframt hafa lífstílshópar í auknum mæli verið að taka fæðubótarefnið til að fækka salernisferðum á meðan áhugamálin eru stunduð að kappi. Þetta á við t.d. hlaupara, golfara, hjólreiða – og göngufólk.

Reynslusögur frá viðskiptavinum Saga Natura

Sigrún Birna Kristjánsdóttir, lögfræðingur í framkvæmdateymi Þorpsins tengslaseturs

Ég heyrði af SagaPro fyrir um tveimur árum og ákvað að gefa því séns því ég þurfti svo oft á salernið á nóttunn. Mér fannst lygilegt hversu fljótt það virkaði, því strax á þriðja degi var ég farin að finna áþreifanlegan mun og þurfti bara að fara aðeins einu sinni á klósettið í stað þess að fara tvisvar til þrisvar sinnum, og í dag er bara hending ef ég vakna til að fara á klósettið á næturna. Það er mikil og góð breyting,“.

Hægt er að lesa viðtalið í heild sinni hér

 

Sigursteinn Steinþórsson, fyrrum lögregluþjónn

Eftir að ég byrjaði að taka SagaPro sef ég betur og tíðni salernisferða á nóttunni hefur snarminnkað. Þetta er veruleg breyting og rosalegur munur að geta sofið vel. Ég fæ dýpri og óslitinn svefn í lengri tíma og vakna úthvíldur á morgnanna og mér líður mun betur út allan daginn.“

Hægt er að lesa viðtalið í heild sinni hér:

Hægt er að gerast áskrifandi með því að smella hér.

Innihald og notkun

Innihald: Hrísgrjónamjöl, SagaPro® hvannarlaufaextrakt, bambus extract, magnesium sterat, hylki úr jurtabeðmi (HPMC).

Ráðlagður neysluskammtur: 1-2 hylki á dag, yfir daginn eða fyrir svefn eftir þörfum.
Eitt hylki inniheldur:
SagaPro®: 100 mg
Mælt er með að taka 2 hylki fyrstu þrjá dagana þegar byrjað er að nota SagaPro.

Notkun
Við mælum með 1-2 töflum og er einstaklingsbundið á hve stuttum tíma virknin kemur fram. Fólk hefur sagst merkja áhrif frá allt niður í fimm daga frá upphafi notkunar. Margir finna ekki fyrir breytingu fyrr en eftir lengri tíma, en fjörutíu daga skammtur á að nægja til að taka allan vafa um hvort SagaPro gagnast eða ekki. Rétt er að leita læknis ef um tíð þvaglát er að ræða því orsakir fyrir þeim geta verið margvíslegar. Þetta á sérstaklega við um karlmenn.

Pakkningarstærð: 60 hylki.

Geymist á þurrum og svölum stað þar sem börn ná ekki til.

Ekki er ráðlagt að neyta meira af vörunni en ráðlagður daglegur neysluskammtur segir til um.
Fæðubótarefni koma ekki í stað fjölbreyttrar og hollrar fæðu.

Barnshafandi konum, konur með barn á brjósti, börn undir 18 ára aldri og fólk með sjúkdóma er ávallt ráðlagt að leita álits læknis eða annars sérfræðings áður en tekin eru inn fæðubótarefni.

 

Byggt á 4 umsögnum

5.00 Á heildina litið
100%
0%
0%
0%
0%
Bæta við umsögn

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Write a review

4 umsagnir fyrir SagaPro -

  1. Katrin

    Ég tek alltaf SagaPro áður en ég fer að sofa og hefur það bætt svefninn minn til muna! Mæli hiklaust með!

  2. Erlendur Garðarsson

    Er komin á þau ár að næturferðir á salernið voru orðnar óþægilega tíðar. Saga pro hefur gefið mér tækifæri á fjölda svefngóðra nátta. Það er að sjálfsögðu Bara frábært.

  3. Rósa Guðrún Daníelsdóttir

    🙂

  4. Hulda Kristín

    Þetta virkar en það tók tæpa 2 mánuði hjá mér, ætla svo sannarlega að halda áfram að taka SagaPro.

Loka Karfan mín
Loka Óskalisti
Close Nýlega skoðað
Loka
Loka
Flokkar
Karfan mín
1