Click here for terms

Upplýsingar um seljanda

Seljandi er Saga Natura ehf. kt. 580914-1280. VSK: 122023. Suðurhella 8, 220 Hafnarfjörður.

Verð á vöru og sendingakostnaður

Saga Natura áskilur sér rétt til að breyta verði án fyrirvara. Öll verð í vefverslun eru gefin upp með virðisaukaskatti en sendingakostnaður bætist við áður en greiðsla fer fram. Saga Natura áskilur sér rétt til að breyta verði án fyrirvara og að hætta við pantanir ef verð vörunnar er rangt skráð í vefverslun.Innanlands pöntunum er dreift af Íslandspósti eða TVG, afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar þeirra gilda fyrir dreifingu og afhendingu pantana. Saga Natura ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. 

Áfyllingarpokar eru sendir með bréfpósti og dreift af Íslandspósti. Þessi bréf eru órekjanleg, ef vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Saga Natura til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.

Pantanir erlendis frá eru sendar með DHL. Sendingarkostnaður bætist við áður en greiðsla fer fram. Viðskiptavinir bera allan kostnað vegna tolla og annarra gjalda sem kunna að leggjast á pantanir við komu til þess lands sem pantað er til. Saga Natura ber enga ábyrgð á greiðslu toll og innflutningsgjalda. Fyrir nánari upplýsingar varðandi innflutningsgjöld hvetjum við þig til þess að leita upplýsinga hjá tollyfirvöldum í þínu landi.

Greiðsla

Hægt er að greiða fyrir vörur í vefversluninni með eftirfarandi hætti:

Með VISA eða MASTERCARD greiðslukortum í gegnum örugga greiðslusíðu Rapyd. Tekið er við kreditkortum og debetkortum.

Áskriftir

Hægt er að greiða fyrir áskriftir með eftirfarandi hætti:

Með VISA eða MASTERCARD greiðslukortum í gegnum örugga greiðslusíðu Rapyd. Tekið er við kreditkortum og debetkortum.

Til þess að segja upp áskrift hefur þú samband við okkur í síma 562 8872 eða í tölvupósti á [email protected]

Að skipta og skila vöru

Hvorki er hægt að skila né skipta vöru nema ef um gallaða vöru er að ræða.

Gölluð vara

Komi upp galli í vöru er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir, eða endurgreiðum sé þess krafist. Að öðru leiti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr.46/2000 og laga um neytendakaup.

Trúnaður

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.

Persónuupplýsingar

Við leggjum áherslu á öryggi persónuupplýsinga viðskiptavina okkar og förum með slíkar upplýsingar í samræmi við lög og reglur um persónuvernd og úrvinnslu persónuupplýsinga. Við söfnum eingöngu upplýsingum um viðskiptavini okkar til þess að geta veitt þá þjónustu sem beðið er um.

Um söfnun persónuupplýsinga:

Við söfnum og vinnum með persónuupplýsingar til að:

  • Halda utan um og vinna með pantanir og vörukaup.
  • Auðkenna viðskiptavini.
  • Geta afhent keypta vöru, tilkynnt um stöðu pöntunar og til að geta haft samband við viðskiptavini okkar vegna spurninga eða upplýsinga um afhendingu.
  • Geta staðfest heimilisfang viðskiptavinar og aðrar nauðsynlegar upplýsingar.
  • Geta aðstoðað viðskiptivini við vöruskil og/eða kvartanir.
  • Hafa umsjón með aðgangi viðskiptavina að vefmiðlum okkar.
  • Hafa yfirlit með vörukaupum.
  • Hafa yfirlit um vöru- og greiðslusögu viðskiptavina.
  • Markaðssetja vörur með tölvupóstum, áminningum um gleymdar/geymdar innkaupakörfur og samfélagsmiðlum.
  • Eiga samskipti við viðskiptavini okkar í gegnum síma, tölvupóst eða aðra rafræna miðla.
  • Geta rannsakað kvartanir.
  • Uppfylla lagalegar skyldur á borð við öryggisskuldbindingar vegna vöru. Þurfi að innkalla vöru eða upplýsa viðskiptavini um öryggi vöru gætum við þurft að láta af hendi upplýsingar eða samskipti til almennings og/eða viðskiptavina.
  • Bæta þjónustu og vöruframboð okkar og auka öryggi fyrir viðskiptavini.
  • Koma í veg fyrir misnotkun á þjónustu okkar og koma í veg fyrir glæpi gegn fyrirtækinu.
  • Koma í veg fyrir ruslpóst og allar óleyfilegar aðgerðir.
  • Einfalda notkun á þjónustu með því að geyma upplýsingar um viðskiptavini, greiðsluleiðir, sendingarmáta og þess háttar.

Við söfnum og vinnum með eftirfarandi upplýsingar:

  • Nafn
  • Tengiliðaupplýsingar (s.s. heimilisfang, netfang, símanúmer)
  • Greiðsluupplýsingar (s.s. upplýsingar um færslur, dagsetningu færslna)
  • Greiðslusaga
  • Pöntunarsaga, s.s. hvaða vara var keypt og hvert hún var send.
  • Upplýsingar um vörukaup
  • Upplýsingar um tölvur viðskiptavina, síma eða önnur tæki sem viðskiptavinur notar og stillingar þeirra.
  • Upplýsingar um hvernig viðskiptavinur notar vefsíður og aðra rafræna miðla fyrirtækisins.
  • Gögn sem notandi býr til (t.d. smellir á vefsíðu og vefflettingar).
  • Hvernig vefsíður og vefmiðlar eru notuð (t.d. hvaða vefsíður og hlutar vefsíðna hafa verið heimsótt og hverju hefur verið leitað að).
  • Bréf, tölvupóstar, símaskilaboð eða aðrar upplýsingar veittar vegna athugasemdar/kvörtunar.
  • Upplýsingar um kaupdag, staðsetningu vörukaupa eða vörugalla/kvartanir.
  • Notandaupplýsingar frá netaðgangi, t.d. þegar viðskiptavinur á í vandræðum með að innskrá sig.

Um upplýsingar til þriðja aðila

Í einhverjum tilfellum gætu persónugreinanleg gögn verið færð til samstarfsaðila okkar t.d. þegar kemur að markaðssetningu (prentun, dreifing o.fl.), flutningi, dreifingu, tækniþjónustu og greiðsluleiðum. Gögn sem eru persónugreinanleg eiga alltaf að vera meðhöndluð af þriðja aðila í samræmi við lög og tilgang okkar við gagnasöfnun.

Við gætum einnig þurft að veita stjórnvöldum t.d. lögreglu eða skattayfirvöldum aðgang að persónugreinanlegum upplýsingum. Að auki gætum við þurft að veita bönkum, korta- og greiðsluleiðafyrirtækjum og flutningsfyrirtækjum aðgang að gögnum sem hægt er að persónugreina. Í slíkum tilvikum eiga þeir aðilar sem fá hjá okkur persónugreinanleg gögn að vinna gögnin í samræmi við lög og reglur um vinnslu persónuupplýsinga.

Um smákökur (cookies)

Það eru tvær tegundir af smákökum. Ein geymir textaskrá í ákveðinn tíma, þar til hún rennur út. Tilgangur hennar er t.d. að segja þér hvað hefur gerst frá því þú heimsóttir síðast. Hin tegundin er svokölluð session cookie, sem hefur ekki dagsetningu. Textaskráin er vistuð tímabundið, á meðan þú ert á vefsíðu og gæti t.d. hjálpað til við að muna tungumálið sem þú ert að nota. Um leið og vafranum er lokað, eyðist textaskráin.

Á  saganatura.is notum við smákökur til að halda utan um það hvað þú hefur sett í vörukörfuna. Við notum líka smákökur til að halda utan um tölfræði, til þess að hjálpa við þróun síðnanna. Þeim upplýsingum er safnað í samstarfi við þriðja aðila.

Bókhaldsgögn

Bókhaldsgögn okkar eru vistuð í samræmi við öryggiskröfur persónuverndarlaganna og laga um færslu bókhalds og varðveislu þess. Geymsla og vistun slíkra upplýsinga miðast við lög þess efnis.

 

Fyrirvari

Öll ákvæði skilmálanna hér að ofan ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Komi upp ágreiningur milli aðila verður slíkur ágreiningur einungis leystur fyrir íslenskum dómstólum.

Lög og varnarþing

Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjaness

Ertu með fyrirspurn eða ábendingu? Sendu okkur póst á [email protected]

Loka Karfan mín
Loka Óskalisti
Close Nýlega skoðað
Loka
Loka
Flokkar
Karfan mín
Karfan er tóm
Byrjum að versla!
Byrjaðu að versla
0