-
Magnesíum glýsínat 2.590 kr.
Magnesíum glýsínat er steinefni sem getur stuðlað að slökun, bætt svefn og dregið úr vöðvaspennu og streitu. Hágæða form með framúrskarandi upptöku sem hjálpar líkama og huga að ná jafnvægi og vellíðan á náttúrulegan hátt.
Magnesíum glýsínat getur:
- Stuðlað að betri svefni
- Aukið orku
- Bætt andlega heilsu
- Minnkað þreytu og streitu
-
Melatónín
Melatónín knýr fram svefnþörf og stuðlar að þreytu og ró.
Melatónín getur hjálpað:
- Þeim sem eru ekki með melatónín í hámarki að kvöldi vegna vaktavinnu, ferðalaga, öldrunar eða blindu
- Þegar sumarnætur eru bjartar
- Þegar skjábirta hamlar þreytutilfinningu
Rétt magn melatóníns í líkamanum heldur dægursveiflunni á réttu róli, en fari hún úr skorðum geta svefntruflanir farið að láta á sér kræla. Fyrir þau sem vinna kvöldvaktir, sitja fyrir framan tölvuskjá fram eftir kvöldi, upplifa flugþreytu, eða þau sem vakna fyrir allar aldir – getur Melatónín bætiefni hjálpað við að rétta af dægurklukkuna. Aldraðir og blindir upplifa einnig gjarnan breytingu á dægurklukkunni og minnkað magn melatóníns að kvöldi.
-
Melatónín – 90 stk 1.890 kr.
Melatónín er náttúrulegt svefnhormón líkamans. Það styttir tímann sem það tekur að sofna og stuðlar að rólegum og endurnærandi nætursvefni.
- Gæðavottuð íslensk framleiðsla
- Smáar töflur, auðveldar til inntöku
- Lágmarks fylliefni
-
SagaProMetið 5.00 af 52.890 kr. – 5.490 kr.Price range: 2.890 kr. through 5.490 kr.
Fækkaðu salernisferðunum
Rannsóknir benda til að SagaPro dragi úr tíðni þvagláta hjá þeim sem eru með litla eða minnkaða blöðrurýmd.
Með því að taka 1-2 töflur af SagaPro er hægt að koma í veg fyrir eða fækka salernisferðum bæði að nóttu og degi. Tíð þvaglát valda jafnan mikilli truflun á nætursvefni og finna margir mun á gæðum svefnsins eftir að inntaka hefst á SagaPro.
SagaPro er oft tekið til þess að:
- Bæta svefn með því að fækka salernisferðum á nóttu
- Fækka salernisferðum í löngum göngum, hjólreiðum, golfi og skíðum
- Bæta lífsgæði hjá einstaklingum með ofvirka þvagblöðru
-
Sefitude
Sefitude er eina svefn og kvíðalyfið sem fæst án lyfseðils í apótekum á Íslandi.
Sefitude getur:
- Stytt tímann sem það tekur að sofna
- Bætt svefngæði
- Minnkað kvíða
- Róað taugakerfið svo auðveldara sé að festa svefn
Sefitude er viðurkennt jurtalyf og því einungis selt í apótekum.
Eftirafandi apótek eru með Sefitude í netsölu:





