Svefn er einn af hornsteinum heilsunnar. Þegar við sofum fer líkaminn í gegnum mikilvægt ferli endurheimtar. Svefn er í reynd ekki einfalt hvíldarástand heldur virkt og flókið lífeðlisfræðilegt ferli. Vefir endurnýjast, hormón seytast og ónæmiskerfið styrkist. Góður nætursvefn hjálpar líkamanum að berjast gegn sýkingum, jafna sig eftir álag og viðhalda jafnvægi í efnaskiptum. Þrátt fyrir það glíma margir við svefnvandamál, erfiðleika við að sofna eða vakna ekki úthvíldir á morgnana.
Af hverju er svefn svona mikilvægur?
Góður svefn hefur áhrif á nánast alla þætti heilsunnar. Hann styður við:
- Orku og einbeitingu yfir daginn
- Minni og námsgetu
- Hormónajafnvægi
- Ónæmiskerfið
- Andlega líðan og streituþol
- Líkamlega endurheimt
Mikilvægi svefns fyrir heilsu og hamingju
Hvernig hefur svefn áhrif á líkamlega og geðræna heilsu?
5 staðreyndir um svefn, heilsu og hamingju
Hvað getur truflað svefninn?
Svefnvandamál geta átt sér margar orsakir. Algengar ástæður eru meðal annars:
- Streita og kvíði
- Óreglulegar svefnvenjur
- Skjátími seint á kvöldin
- Koffín eða áfengi
- Tíðar salernisferðir á nóttunni
- Hormónabreytingar
Garðabrúða við kvíða og svefntruflunum
Samspil svefns og kvíða
Færri salernisferðir og betri svefn
Hvernig getur þú bætt svefninn?
Oft geta litlar breytingar haft mikil áhrif:
- Farðu að sofa á svipuðum tíma og vaknaðu á svipuðum tíma.
- Hafðu svefnherbergið dimmt og svalt.
- Takmarkaðu skjánotkun síðasta klukkutímann fyrir svefn.
- Forðastu koffín síðdegis og á kvöldin.
- Gefðu þér tíma til að slaka á fyrir háttatíma.
Einföld ráð fyrir betri svefn
Svefninn er ekki síður mikilvægur á sumrin
Náttúrulegur stuðningur við svefn
Þegar góð svefnráð duga skammt er hægt að leita að vægum lausnum til þess að rjúfa neikvætt svefnmynstur. Jurtalyf og góð vísindalega rannsökuð fæðubótarefni geta hjálpað líkamanum að brjóta upp neikvæð mynstur, hjálpað að auka ró að kvöldi og stuðla að samfelldum svefni.
Sefitude
Sefitude er eina svefn- og kvíðalyfið sem fæst án lyfseðils í apótekum á Íslandi. Sefitude hefur róandi og kvíðastillandi verkun og er notað til að auðvelda svefn, bæta svefngæði og til að draga úr taugaspennu og kvíða. Hægt er að nota Sefitude meðfram öðrum svefnmeðferðum til að styðja við góðar svefnvenjur.
Sefitude er viðurkennt jurtalyf
og fæst án lyfseðils í næsta apóteki.
-
Quick ViewSetja í körfuMelatónín – 90 stk
1.890 kr.
Melatónín
Til þess að fá endurnærandi svefn þarf líkaminn að seyta nægu melatóníni til þess að viðhalda svefnástandi alla nóttina. Rétt magn melatóníns í líkamanum heldur dægursveiflunni á réttu róli, en fari hún úr skorðum geta svefntruflanir farið að láta á sér kræla. Lágmarksskammtur er 1mg skömmu fyrir svefn.
Leynivopn náttúrunnar gegn svefnlausum nóttum
Sefitude eða Melatónín fyrir góðan nætursvefn?
-
Quick ViewSetja í körfu
Magnesíum glýsínat
Magnesíum tekur þátt í hundruðum ferla í líkamanum og margir kjósa magnesíum glýsínat sem hluta af kvöldrútínu sinni vegna þess hversu vel það þolist. Magnesíum glýsínat er einstakt þegar kemur að upptöku og vöðvaslökun og hentar þeim sem vilja djúpa slökun fyrir nóttina.
-
Quick ViewVeldu valkostiSagaPro
2.890 kr. – 5.490 kr.Price range: 2.890 kr. through 5.490 kr.
SagaPro
SagaPro fækkar tíðum þvaglátum með því að hjálpa þvagblöðrunni fyllast betur fyrir hverja tæmingu. Tíð þvaglát valda jafnan mikilli truflun á nætursvefni og finna margir mun á gæðum svefnsins eftir að inntaka hefst á SagaPro.
SagaPro inniheldur handtínda íslenska hvönn sem hefur verið ein merkasta lækningajurtin í Norður-Evrópu í mörg hundruð ár. Varan er klínískt rannsökuð og hefur í gegnum árin sannað virkni sína og bætt lífsgæði fjölda einstaklinga. Með því að taka 1-2 töflur af SagaPro er hægt að koma í veg fyrir eða fækka salernisferðum bæði að nóttu og degi.
Af hverju þarf ég alltaf að pissa?
Aukin lífsgæði og samfelldur nætursvefn
Færri salernisferðir og betri svefn
Svefn er fjárfesting í heilsunni
Góður svefn er ekki munaður heldur nauðsyn. Með réttum venjum og markvissum stuðningi er hægt að bæta bæði gæði svefns og líðan yfir daginn.
Hvort sem markmiðið er festa betur svefn, vakna sjaldnar á nóttunni eða líða betur yfir daginn getur fyrsta skrefið verið einfaldlega að gefa svefninum þann forgang sem hann á skilið.














Skildu eftir svar