Færri salernisferðir og betri svefn

Bætiefnið SagaPro er unnið úr íslenskri ætihvönn. Það slakar á vöðvum blöðrunnar og kemur að miklu gagni gegn ofvirkri blöðru. Nú er hægt að gerast áskrifandi að SagaPro og fá áfyllingu inn um lúguna í hverjum mánuði. Það er bæði ódýrara, vistvænna og þægilegra.

SagaPro er alíslensk og rótgróin vara, en hún var upprunalega þróuð í Háskóla Íslands af Sigmundi Guðbjarnarsyni, fyrrverandi rektor, og kom fyrst á markað árið 2005.

Síðan þá hefur verið gerð ein klínísk rannsókn á SagaPro og þar kom í ljós að sá hópur innan rannsóknarinnar sem var með ofvirka blöðru hafði mikil not fyrir SagaPro og næturþvaglátum fækkaði.

Áður var talið að varan virkaði aðallega fyrir karla og blöðruhálskirtil, en þessar niðurstöður kollvörpuðu hugmyndum. Þar sem við töldum vöruna bara virka fyrir karla voru allir þátttakendur í rannsókninni karlmenn en það hefur komið í ljós að þetta hefur sömu áhrif á ofvirka blöðru hjá konum og í dag eru um helmingur notenda SagaPro konur.

SagaPro hefur verið afar vinsæl hjá Íslendingum í yfir 20 ár og nú er svo komið að um 1% af þjóðinni notast við SagaPro að staðaldri enda bætir varan svefn einstaklinga með færri salernisferðum. Jafnframt hafa lífsstílshópar í auknum mæli verið að taka SagaPro til að fækka salernisferðum á meðan áhugamálin eru stunduð að kappi. Þetta á við t.d. hlaupara, golfara, hjólreiða – og göngufólk.

Það er frábært að geta boðið upp á þessa vöru af því að það er svo margt fólk sem glímir við það vandamál að þurfa að vakna oft á nóttunni til að pissa. 

Þetta getur haft mikil áhrif á svefn og lífsgæði og til dæmis hindrað fólk í útivist og öðru, þar sem er ekki greiður aðgangur að klósetti.

Vistvæn og þægileg áskrift

SagaPro er er stærsta varan í vörulínunni okkar og fæst í velflestum apótekum og matvælaverslunum, en einnig er hægt að gerast áskrifandi að vörunni. Fólk getur fengið áfyllingarpoka inn um lúguna sína til að fylla á dósirnar. Þá þarf fólk ekki muna eftir að kaupa vöruna og þar sem um áfyllingarpoka er að ræða er þetta er vistvænna en að kaupa alltaf nýjar dósir. Áskrifendur fá fría heimsendingu inn um lúguna og 20% afslátt.

Slakar á blöðruvöðvunum

Lykilhráefnið í SagaPro er íslensk ætihvönn sem er handtínd beint í náttúrunni á vistvænan hátt. Við höfum meðal annars tínt hvönn í Hrísey, þar sem hún hefur verið þurrkuð og svo send í hylkjun og pökkun á Íslandi.

Sem markaðsdrifið rannsóknar- og þróunarfyrirtæki erum við stöðugt að rannsaka betur þau hráefni sem við byggjum sérstöðu okkar á. Í aðdraganda nýju, klínísku rannsóknarinnar gerðum við enn frekari rannsóknir á hvannarlaufaextraktinu og greindum öll lífvirku efnin og prófuðum þau á þvagblöðrumódeli. Þannig fundum við efni sem sýna áhrif á að slaka á blöðruvöðvunum, en við það verður meira rúm fyrir þvag í blöðrunni. 

Fólk sem er með ofvirka blöðru er ekki með minni þvagblöðru en aðrir, hún er bara viðkvæmari og fólki líður eins og því sé mál þó að blaðran sé ekki full. SagaPro minnkar því ekki magnið sem fólk pissar, heldur hjálpar fólki að pissa sjaldnar og þá meira í einu.

Fær auka orku á morgnana
Ráðherra í heimsókn

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Karfan mín
Óskalisti
Nýlega skoðað
Flokkar
Karfan mín
Karfan er tóm
Byrjum að versla!
Byrjaðu að versla
0