Kreatín hefur aldrei bragðast betur!

Saga Natura kynnir KREA – bragðbetri leið að daglegum kreatínskammti. 3 g af kreatíni í hágæða, sykurminna súkkulaði án sætuefna – einfalt, þægilegt og virkilega gott.

Kreatín er orðið hluti af daglegri rútínu margra. Það hefur lengi notið vinsælda meðal fólks sem stundar líkamsrækt en áhuginn hefur aukist hratt undanfarin ár og náð til flestra þeirra sem vilja hlúa að heilsunni.

Notkun kreatíns hefur þó vafist fyrir mörgum þar sem það hefur nær einungis verið fáanlegt sem duft eða hylki. Hjá Saga Natura kviknaði því spurningin: Hvernig getum við gert inntöku kreatíns einfaldari, þægilegri og bragðbetri?

Úr varð KREA.

KREA inniheldur 3 g af kreatíni – sem er einmitt það magn sem þarf til að fá fram jákvæð áhrif kreatíns á heilsuna.

KREA fæst sem 45% mjólkursúkkulaði og 70% dökkt súkkulaði og inniheldur 32-43% minni sykur en hefðbundið súkkulaði.

KREA er fyrsta sinnar tegundar á Íslandi og er nú fáanlegt í
völdum matvöruverslunum. Nánari upplýsingar um sölustaði og innihald á krea.is

Betri svefn: Leiðarvísir að góðri næturhvíld

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Karfan mín
Óskalisti
Nýlega skoðað
Flokkar
Karfan mín
Karfan er tóm
Byrjum að versla!
Byrjaðu að versla
0