AstaSkin

(5 dóma viðskiptavina)

Original price was: 4.782 kr..Current price is: 3.826 kr..

Þú færð 20% afslátt ef þú gerist áskrifandi

Smelltu hér til að kynna þér málið

AstaSkin getur:

  • Aukið náttúrulegan raka húðarinnar
  • Minnkað bólur
  • Bætt sprungna og þurra húð


AstaSkin – Fæðubótarefni

AstaSkin er sérsniðin blanda ætluð til þess að viðhalda fallegri húð. AstaSkin inniheldur klínískt rannsakað seramíð, kollagen, astaxanthin 6 mg og A, B, C, D og E vítamín sem talin eru hafa góð áhrif á húðina.

AstaSkin inniheldur öfluga klíniskt rannsakaða seramíð-blöndu sem heitir Myoceram. Seramíð má finna í ysta lagi húðarinnar, en hlutverk þeirra er að vernda húðina fyrir rakatapi. Með aldrinum minnkar magn seramíða í húðinni.

Kollagen er eitt helsta byggingarprótein líkamans, en eftir 25 ára aldur fer náttúruleg kollagen framleiðsla í líkamanum að minnka.

Astaxanthin er vinsælt meðal þeirra sem eyða miklum tíma utandyra, sérstaklega í sólinni.

AstaSkin getur:

  • Aukið náttúrulegan raka húðarinnar
  • Minnkað bólur
  • Bætt sprungna og þurra húð

Fyrir hverja?

  • Konur á breytingaskeiði
  • Einstaklinga með exem og húðvandamál
  • Ungmenni með bólur
  • Fólk sem vill fallega ljómandi húð
  • Fyrir einstaklinga með Keratosis pilaris alba (e. Chicken skin)

Hægt er að gerast áskrifandi með því að smella hér.

Innihald og notkun

Innihald: Hrísgrjónamjöl, vatnsrofið fiskikollagen, Astaxanthin-ríkir smáþörungar (Haematococcus pluvialis), hylki úr jurtabeðmi (HPMC, litarefni: járnoxíð), Myoceram® seramíð úr hrísgrjónum, d-alfa tókóferýlsúksínat (E-vítamín, önnur vítamín (sjá næringartöflu).

Ráðlagður neysluskammtur: 1 hylki á dag með mat.

Eitt hylki inniheldur:
Astaxanthin: 6 mg
A-vítamín: 800 µg*
E-vítamín: 12 mg*
Níasín (B3): 16 mg*
Sýanókóbalamín (B12): 2,5 µg*
Seramíð: 30 mg
Kollagen: 250 mg
Bíótín (B7): 50 µg*
C-vítamín: 80 mg*
D3-vítamín: 5 µg*
*100% af næringarviðmiði fyrir fullorðna.

Geymist á þurrum og svölum stað þar sem börn ná ekki til.

Ekki er ráðlagt að neyta meira af vörunni en ráðlagður daglegur neysluskammtur segir til um.

Fæðubótarefni koma ekki í stað fjölbreyttrar og hollrar fæðu.

Barnshafandi konum, konur með barn á brjósti, börn undir 18 ára aldri og fólk með sjúkdóma er ávallt ráðlagt að leita álits læknis eða annars sérfræðings áður en tekin eru inn fæðubótarefni.

Fróðleikur

Myoceram: Nærðu húðina innan frá
Myoceram: Nærðu húðina innan frá

Húðin okkar er fyrsta vörnin gegn umhverfinu, og eitt það mikilvægasta sem hún þarf til að halda raka og verjast ertingu eru seramíð – fituefni sem finnast náttúrulega í ysta lagi húðarinnar. Með aldri, streitu og umhverfisáhrifum minnka þessar náttúrulegu seramíðbirgðir, sem getur leitt til húðþurrks og viðkvæmari húð.

previous arrow
next arrow

Byggt á 5 umsögnum

5.00 Á heildina litið
100%
0%
0%
0%
0%

Aðeins innskráðir viðskiptavinir sem hafa keypt þessa vöru mega skilja eftir umsögn.

5 umsagnir fyrir AstaSkin -

  1. Jóhann Ísaksson

    Geggjuð vara!

  2. Guðríður

    Ég er búin að taka AstaSkin í 2 mánuði og sé strax mikinn mun á húðinni. Þurrkublettir sem ég hef dílað við í mörg ár eru horfnir, húðin mikið teygjanlegri og áferðin allt önnur.

  3. Lilja

    Ég er búin að nota AstaSkin í rúmt ár núna og finn gríðarlegan mun á húðinni minni. Fyrst fann ég fyrir því að húðin þornaði ekki eins mikið upp eftir sundferðir og fullorðins bólurnar heyrðu sögunni til. Langtímaárangurinn er samt að „11“ hrukkan á milli augnanna minna sem var að ágerast með hverju árinu minnkaði hægt og rólega og sést núna ekki nema með stækkunargleri. Einnig er vöxtur og heilbrigði á nöglum og hári umtalsvert betri. Gef AstaSkin fulla einkunn.

  4. Lilja Jónasdóttir

    Hef notað AstaSkin í tæpt ár. Finnst húðin vera með meiri ljóma og teygjanlegri. Það var fjarlægður nokkuð stór húðlitablettur úr andliti nú í september, sárið greri ótrúlega fljótt og vel.

  5. Árný Örnólfs

    AstaSkin fær mín allra bestu meðmæli.
    Ég hef aldrei verið eins góð af rósroða, auk þess sem ég var ekki eins viðkvæm og venjulega í sólinni á Tenerife.

Vörunúmer: 10054 Flokkar: , , ,
Karfan mín
Óskalisti
Nýlega skoðað
Flokkar
Karfan mín
Karfan er tóm
Byrjum að versla!
Byrjaðu að versla
0