Liðaró
4.990 kr.
Liðaró er ný kynslóð liðbætiefna sem sameinar þrjú öflugustu náttúruefnin við liðbólgum í eitt hylki. Liðaró er fyrir alla þá sem leitast eftir vöru sem raunverulega virkar á auma og stirða liði.
Fjölþætt verkun hefur verið staðfest með hágæða klínískum rannsóknum. Liðaró verkar hraðar en almennt er þekkt fyrir liðbætiefni og sýna rannsóknir allt að 56% minni liðverki eftir 30 daga notkun.
Liðaró getur:
√ Aukið hreyfigetu
√ Verndað og viðhaldið heilbrigði brjósks
√ Minnkað bólgur í liðum
Þrjú öflug náttúruefni fyrir liðina – aðeins eitt hylki á dag
Fæðubótarefni
Liðaró er ný kynslóð liðbætiefna sem sameinar þrjú öflugustu náttúruefnin við liðbólgum í eitt hylki. Liðaró er fyrir alla þá sem leitast eftir vöru sem raunverulega virkar á auma og stirða liði.
Aðeins eitt hylki af Liðaró á dag þarf til að ná hámarksárangri og því ekki lengur þörf á að taka inn margar töflur daglega.
Hver sölueining inniheldur 30 hylki.
Hágæða íslensk framleiðsla.
Innihald og notkun
Innihald: Túrmerikrótarextrakt, AprèsFlex® Boswellia serrata extrakt, askorbínsýra (C-vítamín), hylki úr jurtabeðmi (HPMC),
Q-actin™ Cucumis sativus staðlað í amk. 1% Ido-BR1 imínósykru, magnesíumsterat, kísildíoxíð, hrísgrjónamjöl, kólekalsíferól (D3-vítamín), mangansítrat, K2-vítamín, svartpiparextrakt.
Ráðlagður neysluskammtur: 1 hylki á dag.
Eitt hylki inniheldur:
AprèsFlex® Boswellia serrata extrakt 100mg
Q-actin™ Cucumis sativus extrakt 20mg
Kúrkúmínóíðar úr túrmerikrót (Curcuma longa) 210 mg
Píperín úr svörtum pipar (Piper nigrum) 1,75 mg
D3-vítamín 15 μg¹
K2-vítamín 60 μg²
C- vítamín 100mg³
Mangan 1 mg⁴
Pakkningastærð: 30 hylki.
Geymið vöruna á þurrum og svölum stað þar sem börn ná ekki til.
Ekki neyta meira en sem nemur ráðlögðum daglegum neysluskammti. Fæðubótarefni koma ekki í stað fjölbreyttrar fæðu.
Barnshafandi konum, konur með barn á brjósti, börn undir 18 ára aldri og fólk með sjúkdóma er ávallt ráðlagt að leita álits læknis eða annars sérfræðings áður en tekin eru inn fæðubótarefni.
¹125%, ²50%, ³300%, ⁴80% af næringarviðmiði fyrir fullorðna.
AprèsFlex® er skrásett vörumerki PLT Health Solutions-Laila Nutraceuticals LLC.
Q-actin™ er skrásett vörumerki IminoTech Inc.
Klínískar rannsóknir
Liðaró er fyrsta liðbætiefnið á markaði sem sameinar öflug náttúruefnin: AprésFlex, Q-actin og kúrkúmínóíða. Að baki hvers náttúruefnis liggur einstaklega sterkur klínískur bakgrunnur og verður stiklað á stóru hér að neðan:
- AprèsFlex® (Boswellia serrata útdráttur)
AprèsFlex er einkaleyfisvarinn og endurbættur útdráttur úr indversku reykelsistré sem hindrar bólguhvetjandi ensím á borð við 5-LOX.1
- Verkir og hreyfigeta: Allt að 70% minni verkir og aukin hreyfigeta hjá einstaklingum með slitgigt.2
- Hraðvirkt: Rannsóknir sýna fram á marktæka minnkun á liðverkjum og óþægindum strax innan 5 daga við lágan skammt (100 mg á dag).3
- Verndar brjósk: Langtímarannsóknir og segulómun (MRI) sýna að AprèsFlex dregur úr bólgu og niðurbroti brjósks. Ennig benda niðurstöður segulómunar til þess að ástand brjósks hafi batnað og liðbilið sömuleiðis.2
- Q-actin® (Gúrkuútdráttur)
Q-actin er náttúrulegur útdráttur úr gúrku (Cucumis sativus) sem inniheldur virka efnið ido-BR1, sem dregur úr bólgumiðlum á borð við TNF-α.
- Verkir og hreyfigeta: Rannsóknir staðfesta allt að 32% bót á liðstarfsemi samkvæmt WOMAC-skalanum og aukinn sveigjanleika í daglegum athöfnum.4
- Betri árangur en glúkósamín og kondróitín: Í 6 mánaða klínískri rannsókn á fólki með slitgigt kom í ljós að aðeins 20 mg skammtur af Q-actin á dag skilaði marktækt betri árangri við að minnka verki og auka hreyfanleika en stórir skammtar af glúkósamíni og kondróítíni.5
- Fingrafimi: Bætir samhæfingu og hreyfigetu í fingrum. Hreyfifærni var metin með 9HPT-prófi, sem er viðurkennd aðferð til að mæla fingrafimi.6
- Kúrkúmínóíðar (Túrmerikútdráttur)
Hágæða, staðlaður útdráttur sem inniheldur 95% af kúrkúmínóíðum, sem eru þekktustu náttúrulegu bólgueyðandi og andoxunarefnin úr túrmerikrótinni.
- Bólgur: Hefur öflug bólgueyðandi og andoxandi áhrif.7
- Liðgigt og slitgigt: Rannsóknir sýna að kúrkúmín getur dregið úr bólgu og unnið á klínískum einkennum hjá sjúklingum með ýmsa gigtarsjúkdóma.7,8
- Betri upptaka: Liðaró inniheldur píperín sem eykur upptöku og verkun kúrkúmíns.9
Því má segja að Liðaró er ný kynslóð liðbætiefni. Með samsetningu þessara þriggja efna fæst hraðari og öflugri virkni en þekkist fyrir önnur liðbætiefni. Liðaró vinnur á áhrifaríkan hátt gegn liðverkjum, stirðleika, og bólgu með því að vernda brjósk og draga úr bólguvirkni.
- AprésFlex. (e.d.). Forsíða. www.apresflex.com.
- Kumar B, Ghaytidak A. B., Pandey A. K., et. al. (2025). A Standardized Boswellia serrata Extract Improves Knee Joint Function and Cartilage Morphology in Human Volunteers with Mild to Moderate Osteoarthritis in a Randomized Placebo-Controlled Study. Journal of the American Nutrition Association, 44(5): 375-386.
- Vishal A.A., Mishra A., Raychaudhuri S.P. (2011). A Double Blind, Randomized, Placebo Controlled Clinical Study Evaluates the Early Efficacy of Aflapin® in Subjects with Osteoarthritis of Knee. International Journal of Medical Sciences, 8(7), 615-622.
- Hausenblas H., Hooper D., Hooper S. (2025). Effectiveness of Cucumis sativus L. Supplementation on Mild to Moderate Joint Pain: A Randomized, Double-Blind, Placebo-Controlled Study. Cureus, 17(9), e93507.
- Nash R. J., Azantsa B. K. G., Sharp H. Shanmugham V. (2018). Effectiveness of Cucumis sativus extract versus glucosamine-chondroitin in the management of moderate osteoarthritis: a randomized controlled trial. Clinical Interventions in Aging, 13, 2119-2126.
- Lloyd A. J. et al. (2025). Oral supplement in healthy older adults to support physical fitness and mental wellbeing. Frontiers in Nutrition, 12:1563999.
- Zeng L. et al. (2022). Efficacy and Safety of Curcumin and Curcuma longa Extract in the Treatment of Arthritis: A Systematic Review and Meta-Analysis of Randomized Controlled Trial. Frontiers in Immunology, 13:891822.
- Kou H. et al. (2023). Effect of curcumin on rheumatoid arthritis: a systematic review and meta-analysis. Frontiers in Immunology, 14:1121655.
- Pan C. et al. (2026). Curcumin-piperine supplementation modulates inflammation, oxidative stress, and cardiometabolic risk: a systematic review of randomized controlled trials. Frontiers in Nutrition, 13:1814168.
Skyldar vörur
AstaSkin er sérsniðin blanda með innihaldsefnum sem tengjast húðhirðu og almennri vellíðan.
AstaSkin inniheldur meðal annars klínískt rannsakað seramíð, kollagen, astaxanthin (6 mg) ásamt A-, B-, C-, D- og E-vítamínum.
Innihaldsefnin í AstaSkin eru valin með það að markmiði að styðja við húðina og henta vel þeim sem vilja huga að daglegri húðumhirðu innan frá.
SagaCranberry+ er einstök vítamínblanda sem styður við heilbrigða þvagblöðru og þvagrás. Endurteknar þvagfærasýkingar geta valdið einkennum ofvirkrar þvagblöðru.
SagaCranberry+ getur:
- Viðhaldið heilbrigðri þvagrás
- Viðhaldið heilbrigðri þvagblöðru
- Styrkt ónæmiskerfið
Fækkaðu salernisferðunum
Rannsóknir benda til að SagaPro dragi úr tíðni þvagláta hjá þeim sem eru með litla eða minnkaða blöðrurýmd.
Með því að taka 1-2 töflur af SagaPro er hægt að koma í veg fyrir eða fækka salernisferðum bæði að nóttu og degi. Tíð þvaglát valda jafnan mikilli truflun á nætursvefni og finna margir mun á gæðum svefnsins eftir að inntaka hefst á SagaPro.
SagaPro er oft tekið til þess að:
- Bæta svefn með því að fækka salernisferðum á nóttu
- Fækka salernisferðum í löngum göngum, hjólreiðum, golfi og skíðum
- Bæta lífsgæði hjá einstaklingum með ofvirka þvagblöðru
Melatónín er náttúrulegt svefnhormón líkamans. Það styttir tímann sem það tekur að sofna og stuðlar að rólegum og endurnærandi nætursvefni.
- Gæðavottuð íslensk framleiðsla
- Smáar töflur, auðveldar til inntöku
- Lágmarks fylliefni
Liðaró er ný kynslóð liðbætiefna sem sameinar þrjú öflugustu náttúruefnin við liðbólgum í eitt hylki. Liðaró er fyrir alla þá sem leitast eftir vöru sem raunverulega virkar á auma og stirða liði.
Fjölþætt verkun hefur verið staðfest með hágæða klínískum rannsóknum. Liðaró verkar hraðar en almennt er þekkt fyrir liðbætiefni og sýna rannsóknir allt að 56% minni liðverki eftir 30 daga notkun.
Liðaró getur:
√ Aukið hreyfigetu
√ Verndað og viðhaldið heilbrigði brjósks
√ Minnkað bólgur í liðum
Astaxanthin er andoxunarefni unnið úr smáþörungum og hefur notið vaxandi vinsælda sem innihaldsefni í fæðubótarefnum.
Íslenskt Astaxanthin getur meðal annars verið áhugaverður kostur fyrir þá sem vilja styðja við virkan lífsstíl og almenna vellíðan. Margir nota astaxanthin sem hluta af daglegri rútínu tengdri hreyfingu, húðumhirðu og útivist.
Sefitude er eina svefn og kvíðalyfið sem fæst án lyfseðils í apótekum á Íslandi.
Sefitude getur:
- Stytt tímann sem það tekur að sofna
- Bætt svefngæði
- Minnkað kvíða
- Róað taugakerfið svo auðveldara sé að festa svefn
Sefitude er viðurkennt jurtalyf og því einungis selt í apótekum.
Eftirafandi apótek eru með Sefitude í netsölu:
KREA – bragðbetri leið að daglegum kreatínskammti. 3 g af kreatíni í hágæða, sykurminna súkkulaði án sætuefna – einfalt, þægilegt og virkilega gott.
KREA inniheldur 3 g af kreatíni – sem er einmitt það magn sem þarf til að fá fram jákvæð áhrif kreatíns á heilsuna.
KREA er fáanlegt í völdum matvöruverslunum – sjá sölustaði á krea.is
Energy er sérstaklega samsett vítamínblanda til að skerpa athygli og gefa aukna orku.
Energy getur:
- Dregið úr þreytu
- Dregið úr streitu
- Bætt einbeitingu
Rosonia VagiCaps er fljótvirk, staðbundin meðferð við óþægindum í leggöngum.
Rosonia VagiCaps getur:
- Komið jafnvægi á pH gildi
- Minnkað útferð, lykt og sviða
- Linað ertingu
- Verndað gegn sýkingum
Vara seld í apótekum
Melatónín knýr fram svefnþörf og stuðlar að þreytu og ró.
Melatónín getur hjálpað:
- Þeim sem eru ekki með melatónín í hámarki að kvöldi vegna vaktavinnu, ferðalaga, öldrunar eða blindu
- Þegar sumarnætur eru bjartar
- Þegar skjábirta hamlar þreytutilfinningu
Rétt magn melatóníns í líkamanum heldur dægursveiflunni á réttu róli, en fari hún úr skorðum geta svefntruflanir farið að láta á sér kræla. Fyrir þau sem vinna kvöldvaktir, sitja fyrir framan tölvuskjá fram eftir kvöldi, upplifa flugþreytu, eða þau sem vakna fyrir allar aldir – getur Melatónín bætiefni hjálpað við að rétta af dægurklukkuna. Aldraðir og blindir upplifa einnig gjarnan breytingu á dægurklukkunni og minnkað magn melatóníns að kvöldi.
Hágæða Kollagen með hýalúronsýru sem styður við náttúrulega uppbyggingu bandvefs og húðar.
Kollagen getur:
- Haft góð áhrif á húð, hár og neglur
- Aukið náttúrulegan raka í húð

















