Rosonia Foam
Rosonia Foam er græðandi froða fyrir sár á húð og óþægindi á kynfærasvæði.
Rosonia getur:
- Verkað græðandi á sár
- Verndað gegn sýkingum
- Linað sviða og kláða
- Minnkað bólgur, roða og eymsli
- Fyrirbyggt óþægindi á kynfærasvæði
- Aukið teygjanleika húðar
Vara seld í apótekum
Lækningavara
Rosonia er einstaklega mjúk kremfroða sem dregur strax úr kláða, sviða og ertingu og vinnur gegn vægum sýkingum, verndar fyrir sýkingum, veitir raka og byggir upp heilbrigða húð. Rosonia er áhrifarík meðferð við óþægindum á ytra kynfærasvæði og hentar einnig vel á viðkvæm svæði eftir fæðingu.
Rosonia getur:
- Verkað græðandi á sár
- Verndað gegn sýkingum
- Linað sviða og kláða
- Minnkað bólgur, roða og eymsli
- Fyrirbyggt óþægindi á kynfærasvæði
- Aukið teygjanleika húðar
Fyrir hverja?
- Einstaklinga sem fá þrálátar sveppa- eða vírussýkingar
- Konur sem sem fá ertingu vegna þvagleka eða útferðar
- Konur sem fá óþægindi í kringum blæðingar
- Konur sem þjást af Lichen Schlerosis, eða legganga- og skapabólgu
- Konur sem eru viðkvæmar fyrir ertingu á kynfærasvæði eftir sund
Rosonia myndar varnarhimnu yfir viðkomandi svæði sem verndar það frá ertandi efnum og árásum örvera úr umhverfinu. Froðuna má því einnig nota fyrirbyggjandi ásamt því að vera góð viðbótarmeðferð með lyfjum gegn bakteríu-, sveppa- og veirusýkingum. Rosonia myndar kjöraðstæður fyrir slímhúðina að gróa og endurnýja sig.
Rosonia er margprófuð og sýna niðurstöður klínískra og forklínískra rannsókna að varan minnkar verulega bólgur, sviða, kláða og einnig rispur og sprungur á kynfærum. Rannsóknir hafa meðal annars sýnt að Rosonia hentar vel konum sem hafa lichen sclerosis.
Innihald og notkun
Virk innihaldsefni
TIAB er einstakt efnasamband myndað úr silfurjónum* tengdum títaníumdíoxíð míkrókristöllum. Það myndar varnarhjúp yfir viðkomandi svæði sem veitir vörn gegn örverum og ertandi efnum. Hjúpurinn veitir kjöraðstæður fyrir slímhúðina að gróa og endurnýja sig.
Malva sylvestris jurtaútdráttur úr skógarstokksrós minnkar bólgur, eykur þéttni og teygjaleika húðar ásamt því að veita róa, sefa og mýkja slímhúðina.
Hýalúrónsýra er rakagjafi ásamt því að styðja við myndun varnarhjúpsins.
Gagnlegar upplýsingar
Fyrir notkun skal þvo bæði hendur og kynfærasvæði og þurrka vel. Flaskan er hrist vel fyrir notkun og haldið í uppréttri stöðu við notkun. Þunnt lag af froðu er borið á ytra kynfærasvæði og nuddað þar til þurrt, froðan er ekki þvegin af. Meðferðina má endurtaka einu sinni eða oftar fyrir daginn í allt að 10 daga eða þar til að fullur bati hefur náðst. Aukaverkanir: vægur sviði sem hverfur oftast þegar líður á meðferðina (tíðni < 10%). Engar þekktar milliverkanir eru við lyf.
*Rannsóknir sýna að silfurjónir í TIAB sambandinu frásogast ekki um húð, hvorki heila húð né rofna. Varan inniheldur 0.005% míkrósilfurjónir.
Fróðleikur


Algengar spurningar um píkuna Flestar konur hafa einhvern tíma fundið fyrir óþægindum á kynfærum, með tilheyrandi sviða, kláða og almennum óþægindum. Allt að helmingur kvenna á aldrinum 30-60 ára hafa upplifað óþægindi á kynfærasvæði, sem getur leitt til verkja við samfarir, sviða, eymsla og ertingar. Margar kannast við einkennin, en þau er hægt er að meðhöndla með einföldum hætti. Hér á eftir eru algengar spurningar varðandi óþægindi sem konur finna fyrir.
Sveppurinn Candida albicans er hluti af eðlilegri bakteríuflóru legganganna. Þegar sýrustigið raskast nær sveppurinn að fjölga sér umfram góðu bakteríurnar (e. lactobacilli) í leggöngunum og sá ofvöxtur kallast sveppasýking (e. candidiasis).
Skyldar vörur
Hágæða Kollagen með hýalúronsýru sem styður við náttúrulega uppbyggingu bandvefs og húðar.
Kollagen getur:
- Haft góð áhrif á húð, hár og neglur
- Aukið náttúrulegan raka í húð
Magnesíum sítrat er steinefni sem stuðlar að eðlilegri starfsemi tauga- og vöðvakerfis. Magnesíum sítrat stuðlar að eðlilegum orkuefnaskiptum, dregur úr þreytu og sleni, ásamt því að stuðla að eðlilegu viðhaldi beina og tanna.
Magnesíum sítrat getur:
- Stuðlað að betri svefni
- Bætt meltingu
- Linað fótapirring
- Minnkað þreytu og streitu
SagaMemo er sérsamsett blanda ætluð til þess að styðja við almenna vitsmunaheilsu.
SagaMemo styður við:
- athygli og einbeitingu
- almenna vitsmunaheilsu
Voxis er fáanlegur í fjórum bragðtegundum:
- Voxis klassískur, sætur
- Voxis klassískur, sykurlaus með stevíu
- Voxis engifer, sykurlaus með stevíu
- Voxis lakkrís, sykurlaus með stevíu
Þú færð Voxis í öllum helstu matvöruverslunum og apótekum.
AstaSkin er sérsniðin blanda með innihaldsefnum sem tengjast húðhirðu og almennri vellíðan.
AstaSkin inniheldur meðal annars klínískt rannsakað seramíð, kollagen, astaxanthin (6 mg) ásamt A-, B-, C-, D- og E-vítamínum.
Innihaldsefnin í AstaSkin eru valin með það að markmiði að styðja við húðina og henta vel þeim sem vilja huga að daglegri húðumhirðu innan frá.
SagaCranberry+ er einstök vítamínblanda sem styður við heilbrigða þvagblöðru og þvagrás. Endurteknar þvagfærasýkingar geta valdið einkennum ofvirkrar þvagblöðru.
SagaCranberry+ getur:
- Viðhaldið heilbrigðri þvagrás
- Viðhaldið heilbrigðri þvagblöðru
- Styrkt ónæmiskerfið
Lyngonia er einstök meðferð án sýklalyfja til meðhöndlunar á þvagfærasýkingum kvenna. Fæst án lyfseðils. Lyfið inniheldur úrdrátt úr sortulyngi og styður klínísk rannsókn langa sögu
lyfsins gegn blöðrubólgu.
Lyngonia getur:
- Dregið úr sýkingareinkennum
- Meðhöndlað vægar þvagfærarsýkingar
Fyrir hverja?
- Konur sem þjást af þvagfærasýkingum
- Konur sem vilja komast hjá notkun sýklalyfja
Lyngonia er viðurkennt jurtalyf og því einungis seld hjá apótekum.
Eftirafandi apótek eru með Lyngonia í netsölu:
Melatónín er náttúrulegt svefnhormón líkamans. Það styttir tímann sem það tekur að sofna og stuðlar að rólegum og endurnærandi nætursvefni.
- Gæðavottuð íslensk framleiðsla
- Smáar töflur, auðveldar til inntöku
- Lágmarks fylliefni
AstaEye inniheldur lútein, zeaxantín ásamt vítamínum og steinefnum byggðum á AREDS2-samsetningu*. Formúlan er þróuð með það að markmiði að styðja við almenna augnheilsu og hentar þeim sem vilja huga að augunum með hækkandi aldri.
AstaEye inniheldur einnig astaxanthin, sem hefur notið vinsælda meðal þeirra sem vilja styðja við augnþægindi og almenna vellíðan augna, sérstaklega við mikla skjánotkun og útiveru.
Rosonia VagiCaps er fljótvirk, staðbundin meðferð við óþægindum í leggöngum.
Rosonia VagiCaps getur:
- Komið jafnvægi á pH gildi
- Minnkað útferð, lykt og sviða
- Linað ertingu
- Verndað gegn sýkingum
Vara seld í apótekum
Magnesíum glýsínat er steinefni sem getur stuðlað að slökun, bætt svefn og dregið úr vöðvaspennu og streitu. Hágæða form með framúrskarandi upptöku sem hjálpar líkama og huga að ná jafnvægi og vellíðan á náttúrulegan hátt.
Magnesíum glýsínat getur:
- Stuðlað að betri svefni
- Aukið orku
- Bætt andlega heilsu
- Minnkað þreytu og streitu
Astaxanthin er andoxunarefni unnið úr smáþörungum og hefur notið vaxandi vinsælda sem innihaldsefni í fæðubótarefnum.
Íslenskt Astaxanthin getur meðal annars verið áhugaverður kostur fyrir þá sem vilja styðja við virkan lífsstíl og almenna vellíðan. Margir nota astaxanthin sem hluta af daglegri rútínu tengdri hreyfingu, húðumhirðu og útivist.















