Hlaup án truflana

Það er eitthvað sérstakt við að fara út að hlaupa. Taka fyrsta skrefið, finna taktinn og leyfa huganum að róast á meðan líkaminn vinnur. En þeir sem hlaupa reglulega vita líka að þetta er ekki alltaf auðvelt. Sumir dagar eru þungir, aðrir ganga betur sem er hluti af ferlinu. Það sem skiptir máli er að mæta, halda áfram, byggja upp þol og styrk – skref fyrir skref.

Fyrir hlaupara sem vilja bæta sig snýst árangur sjaldnast um stórar breytingar heldur litla hluti sem safnast upp. Minni truflun í æfingum getur skipt sköpum þegar á heildina er litið.

Minni truflun skilar meiri gæðum

Þegar hlaupið teygir sig yfir klukkustund fara smáatriðin að skipta máli. Vökvainntaka, fókus og flæði verða lykilatriði. Margir hlauparar kannast þó við að þurfa að aðlaga æfingar að aðstæðum sem hafa lítið með hlaupið sjálft að gera.

Að þurfa að stoppa, halda aftur af vökva eða missa takt getur haft áhrif á gæði æfingarinnar. Þetta eru ekki bara óþægindi heldur raunverulegir þættir sem geta dregið úr árangri og framvindu.

Hvernig nýtist SagaPro í hlaupunum?

SagaPro var þróað til að draga úr tíðni þvagláta og styðja við eðlilega virkni þvagblöðrunnar, þannig að hún geti haldið betur vökva. Það er einmitt þessi eiginleiki sem getur nýst hlaupurum. Þegar þvagblöðran er rólegri og fyllist eðlilegar minnkar þörfin á tíðum stoppum. Það gerir æfingar samfelldari og einfaldar vökvainntöku án þess að þurfa að „plana í kringum“ klósett.

 Mikilvægið í utanvegahlaupum

Ávinningurinn verður enn skýrari þegar hlaupið fer fram utan hefðbundinna leiða. Í utanvegahlaupum eru sjaldnast þægindi eins og aðgengi að salernum og því þarf líkaminn að geta unnið með þér, ekki gegn þér. Þegar ekkert má trufla flæðið skiptir máli að geta treyst líkamanum. Það gerir hlaupurum kleift að einbeita sér að leiðinni, aðstæðum og eigin frammistöðu í stað þess að hugsa um óþarfa stop.

Betri æfingar skila árangri

Á endanum snýst þetta ekki um að hlaupa lengur, heldur betur. Samfelldar æfingar, rétt vökvun og stöðug einbeiting skapa betri grunn fyrir framfarir.

Þegar truflanir eru færri verður auðveldara að halda taktinum og nýta hverja æfingu til fulls. Það er þar sem raunverulegur árangur byggist upp.

Áskrift að SagaPro

Heimsending á fæðubótarefnum frá Saga Natura er hentug lausn fyrir þá sem vilja tryggja reglulega og samfellda inntöku án fyrirhafnar. Með því að fá vörurnar sendar heim sparast tími og fyrirhöfn. Viðskiptavinir í áskrift fá 20% afslátt og fá áfyllingarpoka sendan heim að dyrum, sér að kostnaðarlausu. Umhverfisvænt, þægilegt og jafnframt gott fyrir heilsuna.

Líffræðin á bak við janúar-þreytuna: Af hverju er svona erfitt að komast í gang?

Janúar er mánuður nýs upphafs, hugmynda og markmiða, en fyrir marga Íslendinga er hann líka mánuður mikillar þreytu. Það er ekki viljastyrknum þínum að kenna ...

Náðu hámarksárangri með íslenskum lausnum

Þeir sem fylgjast með eða stunda íþróttir af kappi, vita að leikurinn vinnst jafnt á vellinum og í hvíldinni á milli. Hvort sem markmiðið er ...

Alvöru kraftur úr náttúrunni

Í amstri dagsins er auðvelt að finna fyrir orkuleysi og andlegri þreytu. Hvort sem það er vinnan, fjölskyldulífið eða einfaldlega hraðinn í samfélaginu, þá leitum ...

Að hlaupa með hjartanu og stuðningi náttúrunnar

Það er eitthvað sérstakt við hlaup. Hvort sem um er að ræða rólegt morgunhlaup í náttúrunni eða krefjandi keppni þar sem hjartað hamast, þá veitir ...

Þú kemst lengra með Saga Pro

Melkorka Kvaran, hjúkrunarfræðingur og hlaupari hefur góða reynslu af SagaPro í tengslum við langar hlaupaæfingar og maraþonhlaup. Hlauparar og íþróttafólk þarf að huga vel að ...

Finnur ekki fyrir strengjum meðan aðrir kvarta

Ólafía Kvaran, fyrrverandi heimsmeistari í Spartan og skurðhjúkrunarfræðingur, hefur tekið inn bætiefni frá Saga Natura í fimm ár. Hún segir þau hjálpa til við endurheimt, ...
Virka jurtalyf eins og önnur svefnlyf?

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Karfan mín
Óskalisti
Nýlega skoðað
Flokkar
Karfan mín
Karfan er tóm
Byrjum að versla!
Byrjaðu að versla
0