Liðaró
4.990 kr.
Liðaró er ný kynslóð liðbætiefna sem sameinar þrjú öflugustu náttúruefnin við liðbólgum í eitt hylki. Liðaró er fyrir alla þá sem leitast eftir vöru sem raunverulega virkar á auma og stirða liði.
Fjölþætt verkun hefur verið staðfest með hágæða klínískum rannsóknum. Liðaró verkar hraðar en almennt er þekkt fyrir liðbætiefni og sýna rannsóknir allt að 56% minni liðverki eftir 30 daga notkun.
Liðaró getur:
√ Aukið hreyfigetu
√ Verndað og viðhaldið heilbrigði brjósks
√ Minnkað bólgur í liðum
Fæðubótarefni
Liðaró er ný kynslóð liðbætiefna sem sameinar þrjú öflugustu náttúruefnin við liðbólgum í eitt hylki. Liðaró er fyrir alla þá sem leitast eftir vöru sem raunverulega virkar á auma og stirða liði.
Aðeins eitt hylki af Liðaró á dag þarf til að ná hámarksárangri og því ekki lengur þörf á að taka inn margar töflur daglega.
Liðaró er í hylkjaformi og ráðlagður daglegur neysluskammtur er 1 hylki.
Hver sölueining inniheldur 30 hylki.
Hágæða íslensk framleiðsla.
Innihald og notkun
Innihald: Túrmerikrótarextrakt, AprèsFlex® Boswellia serrata extrakt, askorbínsýra (C-vítamín), hylki úr jurtabeðmi (HPMC),
Q-actin™ Cucumis sativus staðlað í amk. 1% Ido-BR1 imínósykru, magnesíumsterat, kísildíoxíð, hrísgrjónamjöl, kólekalsíferól (D3-vítamín), mangansítrat, K2-vítamín, svartpiparextrakt.
Ráðlagður neysluskammtur: 1 hylki á dag.
Eitt hylki inniheldur:
AprèsFlex® Boswellia serrata extrakt 100mg
Q-actin™ Cucumis sativus extrakt 20mg
Kúrkúmínóíðar úr túrmerikrót (Curcuma longa) 210 mg
Píperín úr svörtum pipar (Piper nigrum) 1,75 mg
D3-vítamín 15 μg¹
K2-vítamín 60 μg²
C- vítamín 100mg³
Mangan 1 mg⁴
Pakkningastærð: 30 hylki.
Geymið vöruna á þurrum og svölum stað þar sem börn ná ekki til.
Ekki neyta meira en sem nemur ráðlögðum daglegum neysluskammti. Fæðubótarefni koma ekki í stað fjölbreyttrar fæðu.
Barnshafandi konum, konur með barn á brjósti, börn undir 18 ára aldri og fólk með sjúkdóma er ávallt ráðlagt að leita álits læknis eða annars sérfræðings áður en tekin eru inn fæðubótarefni.
¹125%, ²50%, ³300%, ⁴80% af næringarviðmiði fyrir fullorðna.
AprèsFlex® er skrásett vörumerki PLT Health Solutions-Laila Nutraceuticals LLC.
Q-actin™ er skrásett vörumerki IminoTech Inc.
Skyldar vörur
Magnesíum sítrat er steinefni sem stuðlar að eðlilegri starfsemi tauga- og vöðvakerfis. Magnesíum sítrat stuðlar að eðlilegum orkuefnaskiptum, dregur úr þreytu og sleni, ásamt því að stuðla að eðlilegu viðhaldi beina og tanna.
Magnesíum sítrat getur:
- Stuðlað að betri svefni
- Bætt meltingu
- Linað fótapirring
- Minnkað þreytu og streitu
Fækkaðu salernisferðunum
Rannsóknir benda til að SagaPro dragi úr tíðni þvagláta hjá þeim sem eru með litla eða minnkaða blöðrurýmd.
Með því að taka 1-2 töflur af SagaPro er hægt að koma í veg fyrir eða fækka salernisferðum bæði að nóttu og degi. Tíð þvaglát valda jafnan mikilli truflun á nætursvefni og finna margir mun á gæðum svefnsins eftir að inntaka hefst á SagaPro.
SagaPro er oft tekið til þess að:
- Bæta svefn með því að fækka salernisferðum á nóttu
- Fækka salernisferðum í löngum göngum, hjólreiðum, golfi og skíðum
- Bæta lífsgæði hjá einstaklingum með ofvirka þvagblöðru
SagaMemo er sérsamsett blanda ætluð til þess að styðja við almenna vitsmunaheilsu.
SagaMemo styður við:
- athygli og einbeitingu
- almenna vitsmunaheilsu
Magnesíum glýsínat er steinefni sem getur stuðlað að slökun, bætt svefn og dregið úr vöðvaspennu og streitu. Hágæða form með framúrskarandi upptöku sem hjálpar líkama og huga að ná jafnvægi og vellíðan á náttúrulegan hátt.
Magnesíum glýsínat getur:
- Stuðlað að betri svefni
- Aukið orku
- Bætt andlega heilsu
- Minnkað þreytu og streitu
Rosonia Foam er græðandi froða fyrir sár á húð og óþægindi á kynfærasvæði.
Rosonia getur:
- Verkað græðandi á sár
- Verndað gegn sýkingum
- Linað sviða og kláða
- Minnkað bólgur, roða og eymsli
- Fyrirbyggt óþægindi á kynfærasvæði
- Aukið teygjanleika húðar
Vara seld í apótekum
Astaxanthin er andoxunarefni unnið úr smáþörungum og hefur notið vaxandi vinsælda sem innihaldsefni í fæðubótarefnum.
Íslenskt Astaxanthin getur meðal annars verið áhugaverður kostur fyrir þá sem vilja styðja við virkan lífsstíl og almenna vellíðan. Margir nota astaxanthin sem hluta af daglegri rútínu tengdri hreyfingu, húðumhirðu og útivist.
Voxis er fáanlegur í fjórum bragðtegundum:
- Voxis klassískur, sætur
- Voxis klassískur, sykurlaus með stevíu
- Voxis engifer, sykurlaus með stevíu
- Voxis lakkrís, sykurlaus með stevíu
Þú færð Voxis í öllum helstu matvöruverslunum og apótekum.
AstaSkin er sérsniðin blanda með innihaldsefnum sem tengjast húðhirðu og almennri vellíðan.
AstaSkin inniheldur meðal annars klínískt rannsakað seramíð, kollagen, astaxanthin (6 mg) ásamt A-, B-, C-, D- og E-vítamínum.
Innihaldsefnin í AstaSkin eru valin með það að markmiði að styðja við húðina og henta vel þeim sem vilja huga að daglegri húðumhirðu innan frá.
Melatónín knýr fram svefnþörf og stuðlar að þreytu og ró.
Melatónín getur hjálpað:
- Þeim sem eru ekki með melatónín í hámarki að kvöldi vegna vaktavinnu, ferðalaga, öldrunar eða blindu
- Þegar sumarnætur eru bjartar
- Þegar skjábirta hamlar þreytutilfinningu
Rétt magn melatóníns í líkamanum heldur dægursveiflunni á réttu róli, en fari hún úr skorðum geta svefntruflanir farið að láta á sér kræla. Fyrir þau sem vinna kvöldvaktir, sitja fyrir framan tölvuskjá fram eftir kvöldi, upplifa flugþreytu, eða þau sem vakna fyrir allar aldir – getur Melatónín bætiefni hjálpað við að rétta af dægurklukkuna. Aldraðir og blindir upplifa einnig gjarnan breytingu á dægurklukkunni og minnkað magn melatóníns að kvöldi.
KREA – bragðbetri leið að daglegum kreatínskammti. 3 g af kreatíni í hágæða, sykurminna súkkulaði án sætuefna – einfalt, þægilegt og virkilega gott.
KREA inniheldur 3 g af kreatíni – sem er einmitt það magn sem þarf til að fá fram jákvæð áhrif kreatíns á heilsuna.
KREA er fáanlegt í völdum matvöruverslunum – sjá sölustaði á krea.is
SagaCranberry+ er einstök vítamínblanda sem styður við heilbrigða þvagblöðru og þvagrás. Endurteknar þvagfærasýkingar geta valdið einkennum ofvirkrar þvagblöðru.
SagaCranberry+ getur:
- Viðhaldið heilbrigðri þvagrás
- Viðhaldið heilbrigðri þvagblöðru
- Styrkt ónæmiskerfið
Energy er sérstaklega samsett vítamínblanda til að skerpa athygli og gefa aukna orku.
Energy getur:
- Dregið úr þreytu
- Dregið úr streitu
- Bætt einbeitingu

















