Rosonia VagiCaps
Rosonia VagiCaps er fljótvirk, staðbundin meðferð við óþægindum í leggöngum.
Rosonia VagiCaps getur:
- Komið jafnvægi á pH gildi
- Minnkað útferð, lykt og sviða
- Linað ertingu
- Verndað gegn sýkingum
Vara seld í apótekum
Lækningavara
Rosonia VagiCaps er staðbundin og fljótvirk meðferð við bakteríu-, sveppa-og veirusýkingum í leggöngum.
Rosonia VagiCaps getur:
- Komið jafnvægi á pH gildi
- Minnkað útferð, lykt og sviða
- Linað ertingu
- Verndað gegn sýkingum
Fyrir hverja?
- Konur sem finna fyrir ertingu í kringum blæðingar
- Konur sem fá sveppasýkingu, vírus eða bakteríusýkingar
- Konur á breytingaskeiði
- Konur eftir fæðingu til að flýta fyrir gróanda
- Konur sem vilja huga að heilbrigði flóru í leggöngum
Rosonia VagiCaps er fljótvirk, staðbundin meðferð við óþægindum í leggöngum s.s. sviða, kláða, særindum og óeðlilegri útferð. Myndar varnarhimnu sem vinnur gegn bakteríu-, sveppa- og veirusýkingum. Niðurstöður klínískra rannsókna sýna að sviði, erting og útferð minnkar verulega. Stuðlar að náttúrulegri flóru í leggöngum. Græðandi við særindum eftir fæðingu. Hylkin má einnig nota fyrirbyggjandi meðferð sem og viðbótarmeðferð með lyfjum gegn bakteríu-, sveppa- og veirusýkingum.
Innihald og notkun
Virk innihaldsefni
TIAB er einstakt efnasamband myndað úr silfurjónum* tengdum títaníumdíoxíð míkrókristöllum. Það myndar varnarhjúp yfir viðkomandi svæði sem veitir vörn gegn örverum og ertandi efnum. Hjúpurinn veitir kjöraðstæður fyrir slímhúðina að gróa og endurnýja sig.
Aloe vera róar slímhúðina, græðir og veitir raka.
Hýalúrónsýra er rakagjafi ásamt því að styðja við myndun varnarhjúpsins.
Inniheldur 10 leggangahylki
Notkun
Fyrir notkun skal þvo bæði hendur og kynfærasvæði og þurrka vel. Eitt hylki er sett hátt upp í leggöng þegar lagst er til svefns, meðferðin er endurtekin daglega í sjö daga eða þar til fullur bati hefur náðst. Sumar konur upplifa vægan sviða í upphafi meðferðar sem hverfur þegar líður á meðferðina. Engar þekktar milliverkanir eru við lyf.
*Rannsóknir sýna að silfurjónir í TIAB sambandinu frásogast ekki um húð, hvorki heila húð né rofna. Varan inniheldur 0.005% míkrósilfurjónir.
Fróðleikur


Algengar spurningar um píkuna Flestar konur hafa einhvern tíma fundið fyrir óþægindum á kynfærum, með tilheyrandi sviða, kláða og almennum óþægindum. Allt að helmingur kvenna á aldrinum 30-60 ára hafa upplifað óþægindi á kynfærasvæði, sem getur leitt til verkja við samfarir, sviða, eymsla og ertingar. Margar kannast við einkennin, en þau er hægt er að meðhöndla með einföldum hætti. Hér á eftir eru algengar spurningar varðandi óþægindi sem konur finna fyrir.
Sveppurinn Candida albicans er hluti af eðlilegri bakteríuflóru legganganna. Þegar sýrustigið raskast nær sveppurinn að fjölga sér umfram góðu bakteríurnar (e. lactobacilli) í leggöngunum og sá ofvöxtur kallast sveppasýking (e. candidiasis).
Skyldar vörur
Melatónín er náttúrulegt svefnhormón líkamans. Það styttir tímann sem það tekur að sofna og stuðlar að rólegum og endurnærandi nætursvefni.
- Gæðavottuð íslensk framleiðsla
- Smáar töflur, auðveldar til inntöku
- Lágmarks fylliefni
Astaxanthin er andoxunarefni unnið úr smáþörungum og hefur notið vaxandi vinsælda sem innihaldsefni í fæðubótarefnum.
Íslenskt Astaxanthin getur meðal annars verið áhugaverður kostur fyrir þá sem vilja styðja við virkan lífsstíl og almenna vellíðan. Margir nota astaxanthin sem hluta af daglegri rútínu tengdri hreyfingu, húðumhirðu og útivist.
Voxis með íslenskri hvönn – kassi með 20 pokum
Voxis-hálsbrjóstsykrar úr íslenskri hvönn. Í hverjum kassa eru 20 pokar. Verðið er fyrir einn kassa og fjöldinn í körfunni miðast við kassa.
Voxis engifer með íslenskri hvönn – kassi með 20 pokum
Sykurlausir Voxis-hálsbrjóstsykrar með engifer og íslenskri hvönn. Í hverjum kassa eru 20 pokar. Verðið er fyrir einn kassa og fjöldinn í körfunni miðast við kassa.
SagaMemo er sérsamsett blanda ætluð til þess að styðja við almenna vitsmunaheilsu.
SagaMemo styður við:
- athygli og einbeitingu
- almenna vitsmunaheilsu
Energy er sérstaklega samsett vítamínblanda til að skerpa athygli og gefa aukna orku.
Energy getur:
- Dregið úr þreytu
- Dregið úr streitu
- Bætt einbeitingu
Magnesíum glýsínat er steinefni sem getur stuðlað að slökun, bætt svefn og dregið úr vöðvaspennu og streitu. Hágæða form með framúrskarandi upptöku sem hjálpar líkama og huga að ná jafnvægi og vellíðan á náttúrulegan hátt.
Magnesíum glýsínat getur:
- Stuðlað að betri svefni
- Aukið orku
- Bætt andlega heilsu
- Minnkað þreytu og streitu
Voxis sykurlaus með íslenskri hvönn – kassi með 20 pokum
Sykurlausir Voxis-hálsbrjóstsykrar úr íslenskri hvönn. Í hverjum kassa eru 20 pokar. Verðið er fyrir einn kassa og fjöldinn í körfunni miðast við kassa.
Voxis lakkrís með íslenskri hvönn – kassi með 20 pokum
Sykurlausir Voxis-hálsbrjóstsykrar með lakkrís og íslenskri hvönn. Í hverjum kassa eru 20 pokar. Verðið er fyrir einn kassa og fjöldinn í körfunni miðast við kassa.
Fækkaðu salernisferðunum
Rannsóknir benda til að SagaPro dragi úr tíðni þvagláta hjá þeim sem eru með litla eða minnkaða blöðrurýmd.
Með því að taka 1-2 töflur af SagaPro er hægt að koma í veg fyrir eða fækka salernisferðum bæði að nóttu og degi. Tíð þvaglát valda jafnan mikilli truflun á nætursvefni og finna margir mun á gæðum svefnsins eftir að inntaka hefst á SagaPro.
SagaPro er oft tekið til þess að:
- Bæta svefn með því að fækka salernisferðum á nóttu
- Fækka salernisferðum í löngum göngum, hjólreiðum, golfi og skíðum
- Bæta lífsgæði hjá einstaklingum með ofvirka þvagblöðru
Sefitude er eina svefn og kvíðalyfið sem fæst án lyfseðils í apótekum á Íslandi.
Sefitude getur:
- Stytt tímann sem það tekur að sofna
- Bætt svefngæði
- Minnkað kvíða
- Róað taugakerfið svo auðveldara sé að festa svefn
Sefitude er viðurkennt jurtalyf og því einungis selt í apótekum.
Eftirafandi apótek eru með Sefitude í netsölu:
Melatónín knýr fram svefnþörf og stuðlar að þreytu og ró.
Melatónín getur hjálpað:
- Þeim sem eru ekki með melatónín í hámarki að kvöldi vegna vaktavinnu, ferðalaga, öldrunar eða blindu
- Þegar sumarnætur eru bjartar
- Þegar skjábirta hamlar þreytutilfinningu
Rétt magn melatóníns í líkamanum heldur dægursveiflunni á réttu róli, en fari hún úr skorðum geta svefntruflanir farið að láta á sér kræla. Fyrir þau sem vinna kvöldvaktir, sitja fyrir framan tölvuskjá fram eftir kvöldi, upplifa flugþreytu, eða þau sem vakna fyrir allar aldir – getur Melatónín bætiefni hjálpað við að rétta af dægurklukkuna. Aldraðir og blindir upplifa einnig gjarnan breytingu á dægurklukkunni og minnkað magn melatóníns að kvöldi.


















