ROSONIA LÆKNINGAVÖRURNAR

Áhrifarík meðferð við óþægindum á kynfærasvæði kvenna

Allar konur geta fundið fyrir óþægindum á kynfærasvæði og geta ástæður þessverið fjölmargar. Ójafnvægi í pH-gildi, sveppasýking, bakteríusýking, eða veirusýking, tíðahvörf, blæðingar, ertandi efni, kynlíf, fæðing, brjóstagjöf og aukaverkanir lyfja geta valdið margvíslegum einkennum. Margar kannast við einkennin, en þau er hægt er að meðhöndla með einföldum hætti.

Rosonia lækningavörurnar draga fljótt úr kláða, sviða og ertingu á kynfærasvæðinu hver sem orsökin er. Rosonia er klínískt rannsökuð lækningarvara.

Rosonia er einstaklega mjúk kremfroða sem dregur strax úr kláða, sviða og ertingu á ytra kynfærasvæðinu. Hún vinnur á og verndar gegn vægum sýkingum, veitir raka og byggir upp heilbrigða húð. Klínísk rannsökuð viðbótarmeðferð við Lichen sclerosus.

  • Græðir sár
  • Vinnur gegn sýkingum
  • Linar sviða og kláða
  • Minnkar bólgur, roða og eymsli
  • Eykur teygjanleika húðar

Rosonia froðan er ætluð til meðferðar og á því ekki að skola af.

Rosonia VagiCaps er staðbundin og fljótvirk meðferð við bakteríu-, sveppa-og veirusýkingum í leggöngum.

  • Komið jafnvægi á pH gildi
  • Minnkað útferð, lykt og sviða
  • Linað ertingu
  • Verndað gegn sýkingum

Rosonia lækningavörurnar henta einnig vel sem fyrirbyggjandi meðferð, einnig sem græðandi meðferð samhliða lyfjanotkun.

ALGENGAR SPURNINGAR UM PÍKUNA

Er eðlilegt að fá bólur á píkuna?

Bólur (e. acne) á kynfærum eru nokkuð algengar, en í flestum tilfellum fullkomlega hættulausar. Bólur geta komið hvar sem er á húðina, en það eru ...
Lesa meira →

Er eðlilegt að fá útbrot og litlar bólur á píkuna eftir rakstur?

Ég fæ oft rauð útbrot og litlar bólur eftir að ég raka bikínísvæðið, er það eðlilegt? Það er mjög algengt að fá útbrot á húðina ...
Lesa meira →

Er eðlilegt að fá oft sveppasýkingu eftir blæðingar?

Það er mjög algengt að upp komi sviði eða kláði í kringum blæðingar. Þessi óþægindi eru hinsvegar ekki alltaf sveppasýking. Hjá sumum konum verður breyting ...
Lesa meira →

Ég er með óþægindi á kynfærasvæðinu – hvað getur það verið?

Óþægindi á kynfærasvæði er almennt hugtak sem vísar til þess sem veldur kláða, ertingu, sviða eða sársauka í píkunni. Fjölmargar orsakir geta legið þar að ...
Lesa meira →

ALGENGAR SPURNINGAR UM ROSONIA

Rosonia Foam er froða sem borin er á ytra kynfærasvæðið þegar upp koma óþægindi, s.s. kláði, sviði erting, bólgur eða sár. Ástæðan getur verið af mörgum toga s.s. sveppasýking, ójafnvægi í pH gildi, vegna efna í umhverfinu, sæðis, blæðinga, núnings við fatnað eða íþróttaiðkunar, svo eitthvað sé nefnt. Froðan hefur viðurkennda virkni og vinnur gegn vægum sýkingum, verndar húðina gegn endurteknum sýkingum, veitir raka og byggir upp heilbrigða húð. Hentar vel fyrir og eftir fæðingu.

Rosonia VagiCaps eru lítil hylki sem sett eru í leggöng. Hylkin hafa viðurkennda virkni og veita fljótvirka og staðbundna meðferð við óþægindum, s.s. sviða, kláða, særindum og óeðlilegri útferð, ásamt því að stuðla að náttúrulegri flóru legganga. Hylki er sett upp í leggöng fyrir svefn í eina viku, eða eftir þörfum.

Þegar vara hefur farið í gegnum margar prófanir og niðurstöður klínískra rannsókna sýna að um áhrifaríka meðferð er að ræða, þá er talað um viðurkennda virkni. Klínískar rannsóknir hafa sýnt fram á að Rosonia Foam og Rosonia VagiCaps veita áhrifaríka meðferð við óþægindum, sviða og særindum á ytra kynfærasvæði og í leggöngum.

Óhætt er að nota Rosonia froðuna á meðgöngu og eftir fæðingu. Froðan er einstaklega vel til þess fallin að undirbúa viðkvæmt svæðið undir fæðinguna, þar sem skógarstokkrósin eykur teygjanleika húðarinnar t.d. á spangarsvæðinu. Froðan er einnig mjög græðandi og hjálpar þannig húðinni að jafna sig eftir fæðinguna. Mælt er með því að konur ráðfæri sig við lækni eða ljósmóður fyrir notkun á Rosonia VagiCaps á meðgöngu, þar sem sú meðferð felur í sér innsetningu í leggöng.

Notkun Rosonia á börnum hefur ekki verið rannsökuð og því er aðeins hægt að fullyrða um notkun hennar á fullorðnum einstaklingum, eldri en 18 ára.

Það er hinsvegar ekkert sem bendir til þess að Rosonia sé skaðleg börnum og því er mælt með því að einstaklingar ráðfæri sig við lækni eða annað heilbrigðismenntað starfsfólk áður en ákvörðun er tekin, um að nota vöruna á annan máta en ráðlagt er í fylgiseðli.

Hvorki Rosonia Foam, né Rosonia VagiCaps innihalda hormón. Báðar vörurnar stuðla að heilbrigðri slímhúð, veita raka og lina óþægindi á kynfærasvæðinu. Rosonia Foam hentar ytri kynfærum, en Rosonia VagiCaps eru hylki sem sett eru inn í leggöng.

Rosonia VagiCaps hentar mjög vel þeim konum sem upplifa óþægindi í kringum blæðingar. Vegna breytinga á sýrustigi (pH-gildi) legganganna fyrir blæðingar er eðlilegt að upplifa óþægindi einhverjum dögum fyrir og því er kjörið að nota Rosonia VagiCaps í 2-3 daga fyrir blæðingar. Einnig getur tíðablóð raskað jafnvægi sýrustigsins sem orsakar óþægindi einhverja daga eftir blæðingar og er þá Rosonia  VagiCaps notað daglega þar til einkenni eru horfin. Samtímis má nota Rosonia Foam ef óþægindi eins og kláði, sviði og erting koma fram á ytri kynfærum.

Almennt er ráðlagt að nota Rosonia VagiCaps hylkin samfellt í 7-10 daga til þess að vinna á sýkingu eða öðrum óþægindum. Einnig má nota Rosonia hylkin eftir þörfum, t.d. ef ójafnvægi skapast í pH-gildi leggangana. Slíkt ójafnvægi má lesa um í fjölmörgum pistlum á Florealis.is, en ójafnvægi í pH-gildi getur orsakast innan tíðahringsins, við blæðingar, eftir sund, við samfarir, í tengslum við inntöku sýklalyfja, notkun á tíðavörum s.s. túrtappa eða dömubinda, notkun á smokkum eða sleipiefni í kynlífi, ertingu vegna sæðis.

Sumar konur upplifa sviða eða kælitilfinningu þegar Rosonia froðan er borin á kynfærasvæðið. Tilfinningin líður fljótt hjá og er eðlileg þar sem svæðið er viðkvæmt. Allar upplýsingar er að finna í fylgiseðli sem og á heimasíðu Florealis.

Rosonia VagiCaps hefur engar þekktar milliverkanir við lyf og því er óhætt að nota Rosonia hylkin samhliða NuvaRing. Það er þó mikilvægt að hafa í huga að þar sem hylkin eru sett upp í leggöng er sú hætta fyrir hendi að hringurinn geti brotnað þegar hylkinu er komið fyrir. Það eru þó afar litlar líkur á að slíkt gerist þar sem Rosonia hylkin eru lítil og mjúk, ólíkt t.d. sveppalyfjum til notkunar í leggöng. Til að minnka líkurnar þá mælum við með að setja hylkin varlega upp í leggöng. Ef það gerist að hringurinn brotnar eða rennur út þá eru nákvæmar leiðbeiningar í fylgiseðli NuvaRing hvernig á að bregðast við.

Rosonia froðan skal borin á ytri kynfærin og hana þarf ekki að þvo af.

 

MEIRI FRÓÐLEIKUR

Kláði og útferð eru ekki alltaf sveppasýking!

Óþægindi á ytri kynfærum og í leggöngum kvenna eru oft meðhöndluð sem sveppasýking. Sveppasýking er hins vegar alls ekki alltaf ástæðan fyrir óþægindum á kynfærum. ...
Lesa meira →

Lichen sclerosus, þögull og vangreindur sjúkdómur

Lichen sclerosus er þögull sjúkdómur sem fáir hafa heyrt nefndan. Lítið er um hann skrifað, lítið rætt, þekkingin á sjúkdómnum er stutt á veg komin ...
Lesa meira →

Trönuber til varnar blöðrubólgu

Stór hluti kvenna þarf að glíma við endurteknar þvagfærasýkingar í gegnum ævina. Þær konur sem hafa upplifað sáran sviða við þvaglát og stöðuga þörf til ...
Lesa meira →

Endurtekin blöðrubólga – Hvað er til ráða?

Þvagfærasýkingar hafa áhrif á stóran hluta mannkyns. Um það bil 150 milljónir kvenna um allan heim fá þvagfærasýkingu á hverju ári. Meira en helmingur kvenna ...
Lesa meira →

Sortulyng – Náttúrulegt ráð við blöðrubólgu

Blöðrubólgur eða þvagfærasýkingar eru sérstaklega algengar á meðal kvenna. Sumar fá slíkar sýkingar endurtekið. Lyngonia frá Florealis er viðurkennt jurtalyf við endurteknum þvagfærasýkingum hjá konum ...
Lesa meira →

Staðreyndir um blöðrubólgu sem allar konur ættu að vita

Stór hluti kvenna þarf að glíma við endurteknar þvagfærasýkingar í gegnum ævina. Þær konur sem hafa upplifað sáran sviða við þvaglát og stöðuga þörf til ...
Lesa meira →
Karfan mín
Óskalisti
Nýlega skoðað
Flokkar
Karfan mín
Karfan er tóm
Byrjum að versla!
Byrjaðu að versla
0