Getur jurtalyf virkað eins og Sobril við svefnleysi?

Fyrir marga sem glíma við langvarandi svefnleysi hefur lausnin gjarnan verið lyfseðilsskyld slævandi lyf, eins og oxazepam. Þótt þau geti virkað fljótt fylgja þeim oft áhyggjur af ávanabindingu, sljóleika daginn eftir og öðrum aukaverkunum.

En hvað ef náttúrulegri leið gæti veitt svipaðan ávinning?

Rannsóknir síðastu áratuga benda til þess að jurtalyf úr garðabrúðurót (e. valerian), geti hjálpað fólki að sofna hraðar og bæta gæði svefns – án þeirra aukaverkana sem oft fylgja sterkari slævandi lyfjum og því verið raunhæfur og öruggur valkostur.

Hvað segja vísindin?

Í umfangsmikilli klínískri rannsókn voru sjúklingar á aldrinum 18 til 73 ára, sem þjáðust af svefnleysi, bornir saman í sex vikur. Annar hópurinn fékk 600 mg af garðabrúðurót (samsvarandi skammti og í Sefitude) en hinn hópurinn fékk 10 mg af oxazepam (betur þekkt sem Sobril) á dag (Ziegler o.fl., 2002).

Niðurstöðurnar voru eftirfarandi:

  • Jafn mikil virkni: Garðabrúðurótin reyndist hafa sambærileg áhrif og lyfseðilsskylda lyfið þegar kom að því að bæta svefngæði.
  • Betri líðan: Þátttakendur upplifðu svipaða framför hvað varðar andleg endurheimt eftir svefn og minni andlega þreytu á kvöldin.
  • Færri aukaverkanir: Þeir sem tóku jurtalyfið upplifðu almennt færri aukaverkanir en þeir sem tóku oxazepam. Yfir 80% þátttakenda mátu meðferðina með garðabrúðurót sem „mjög góða“.

Önnur rannsókn frá árinu 2000 sýndi svipaðar niðurstöður. Þarf fannst enginn marktækur munur á virkni garðabrúðurót og oxazepams við meðferð svefnleysis, en höfundar bentu sérstaklega á að jurtalyfið væri áhugaverður kostur vegna færri og vægari aukaverkunum (Dorn, 2000).

Af hverju Sefitude?

Sefitude er jurtalyf sem inniheldur extrakt úr garðabrúðurót (Valeriana officinalis), sömu jurt og hefur verið rannsökuð í klínískum rannsóknum á svefni.

  • Ekki ávanabindandi
  • Veldur ekki timburmannaáhrifum
  • Veldur ekki jafnvægisleysi hjá eldra fólki
  • Veitir ró, styttir tímann við að sofna og bætir gæði svefns
  • Þolist vel og eru aðeins vægar aukaverkanir frá meltingarvegi þekktar
  • Má nota frá 12 ára aldri

Niðurstaðan

Fyrir þá sem vilja forðast sterk slævandi lyf en vantar raunverulega hjálp við svefn, er Sefitude raunhæfur valkostur – klínískt rannsakað og með langa sögu um virkni. Rannsóknir benda til þess að Sefitude geti veitt sambærilegan ávinning fyrir svefn og ákveðin svefnlyf, en með færri þekktum aukaverkunum.

Athugið: Alltaf er ráðlegt að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing ef verið er að skipta út lyfseðilsskyldum lyfjum.

Notkun við svefntruflunum: 1 tafla ½-1 klst fyrir svefn fyrir 12 ára og eldri. Notkun við vægum kvíða: 1 tafla 1-3 sinnum á dag fyrir fullorðna og 1 tafla 1-2 á dag fyrir 12-18 ára. Hámarksskammtur fyrir 12-18 ára eru 2 töflur en 4 töflur fyrir fullorðna. Ekki ætlað yngri en 12 ára, þunguðum konum eða konum með barn á brjósti. Frábendingar: Ofnæmi fyrir virka efninu eða öðrum innihaldsefnum. Upplýsingar um aukaverkanir, milliverkanir, varnaðarorð og önnur mikilvæg atriði má nálgast á serlyfjaskra.is. Dags. síðustu samþykktar um eiginleika lyfs: okt 2022. Florealis ehf., [email protected].

Heimildir

Dorn M. (2000).
Efficacy and tolerability of Baldrian (valerian) versus oxazepam in non-organic and non-psychiatric insomniacs – a randomized, double-blind comparative study. Arzneimittel-Forschung / Drug Research.

Ziegler G., Ploch M., Miettinen-Baumann A., Collet W. (2002).
Efficacy and tolerability of valerian extract LI 156 compared with oxazepam in the treatment of non-organic insomnia – a randomized, double-blind, comparative clinical study. European Journal of Medical Research, 7(11), 480–486.

Náttúruleg hjálp á breytingaskeiði

Breytingaskeiðið er mikilvægt lífsskeið í lífi kvenna og því fylgja margvíslegar líkamlegar og andlegar breytingar. Fyrir margar konur getur þetta tímabil verið yfirþyrmandi og haft ...
Lesa meira →

Einföld ráð fyrir betri svefn

Nægur og góður svefn bætir andlega heilsu, eykur vellíðan og gerir okkur betur í stakk búin til að takast á við álag og verkefni daglegs ...
Lesa meira →

Garðabrúða við kvíða og svefntruflunum

Notkun garðabrúðu (Valeriana officinalis) má rekja allt aftur til 5. aldar fyrir Krist. Áhrif garðabrúðu á svefnraskanir og svefnmynstur hafa verið töluvert rannsökuð. Garðabrúða hefur ...
Lesa meira →
Vísindin á bak við Sefitude: Svona virkar garðabrúðurót (Valerian) á taugakerfið
Karfan mín
Óskalisti
Nýlega skoðað
Flokkar
Karfan mín
Karfan er tóm
Byrjum að versla!
Byrjaðu að versla
0