Útferð er fullkomlega eðlileg en getur verið mismikil eftir aðstæðum. Útferðin breytist til dæmis yfir tíðarhringinn bæði hvað varðar magn og útlit. Eðlileg útferð er oftast glær eða ljós á litinn og lyktarlaus.
Mjög mikilvægt er fyrir heilbrigði legganga að viðhalda eðlilegu sýrustigi (pH gildi). Eðlilegt pH gildi legganga er töluvert súrt, á milli 3.8 og 4.5, sem heldur gerlaflórunni í jafnvægi og verndar gegn sýkingum.
Sveppurinn Candida albicans er hluti af eðlilegri bakteríuflóru legganganna. Þegar sýrustigið raskast nær sveppurinn að fjölga sér umfram góðu bakteríurnar (e. lactobacilli) í leggöngunum og sá ofvöxtur kallast sveppasýking (e. candidiasis).
Í leggöngunum finnast margar gerðir baktería, bæði góðar bakteríur (e. lactobacilli) sem standa vörð um heilbrigði legganganna, en einnig aðrar slæmar bakteríur (e. anaerobes). Góðu bakteríurnar viðhalda jafnvægi á sýrustigi í leggöngunum (pH-gildi) og með því heilbrigði legganganna. Þegar eðlileg bakteríuflóra legganga raskast, geta slæmu bakteríurnar fjölgað sér umfram aðrar og upp kemur ójafnvægi (e. bacterial vaginosis) sem veldur óþægindum.
Daði Erlingsson komst í kynni við vörur Saga Natura & Florealis árið 2018. Hann hefur verið dyggur viðskiptavinur allar götur síðan og mælir gjarnan með vörunum við vini og vandamenn. Við settum okkur í samband við Daða til þess að fræðast aðeins um söguna hans.
Bætiefnið SagaPro er unnið úr íslenskri ætihvönn. Það slakar á vöðvum blöðrunnar og kemur að miklu gagni gegn ofvirkri blöðru. Nú er hægt að gerast áskrifandi að SagaPro og fá áfyllingu inn um lúguna í hverjum mánuði. Það er bæði ódýrara, vistvænna og þægilegra. SagaPro er alíslensk og rótgróin vara, en hún var upprunalega þróuð […]
Svavar Sigursteinsson einkaþjálfari leggur mikla áherslu á alhliða þjálfun í líkamsræktinni með samblandi af styrk- og þolæfingum. Vinnutími hans hefst klukkan sex á morgnana og til að fá aukna orku og styrk tekur hann Energy frá KeyNatura. Svavar hefur yfir tuttugu ára reynslu í líkamsræktarþjálfun og margir íþróttamenn koma til hans til að fá aukinn […]