Augnlæknar mæla með AstaEye

Saga Natura hefur þróað bætiefnið AstaEye ætlað til að stuðla að góðri augnheilsu. AstaEye er sérstaklega hannað til að koma í veg fyrir hrörnun augnbotna svo og til þess að verja augun gegn útfjólubláum geislum sólar

Augnbotnahrörnun er algengasta orsök lögblindu hjá fólki sem er 50 ára og eldra en tengsl augnbotnahrörnunar við þau næringarefni sem fólk innbyrðir hafa verið mikið rannsökuð. Ein umfangsmesta augnrannsókn sem framkvæmd hefur verið í Bandaríkjunum, svokölluð AREDS2-rannsókn, var gerð á hópi fólks sem fékk lítið af náttúrulegum litarefnum í gegnum mataræði sitt, sem finnast meðal annars í grænkáli og spínati. Sá hluti hópsins sem fékk fæðubót til inntöku með þessum efnum var 25% ólíklegri til þess að þróa með sér augnbotnahrörnun en viðmiðunarhópurinn sem fékk ekki fæðubót. Lilja Jónasdóttir er 72 ára hjúkrunarfræðingur á eftirlaunum sem greindist fyrir tilviljun með aldurstengda augnbotnahrörnun þegar hún var sextug.

„Ég veit svo sem að það er staðreynd að sjúkdómurinn hrjái mig en með því að taka AstaEye töflurnar góðu og nota sólgleraugu hef ég ekki orðið vör við að hann hafi nein áhrif á lífið mitt,“ segir Lilja og bætir við: „Foreldrar mínir voru bæði með þennan sjúkdóm og pabbi orðinn næstum blindur. Amma var líka orðin alveg blind þegar hún varð eldri, en ég veit nú reyndar ekki hvaða sjúkdómur olli því,“ segir Lilja, sem fyrir tilviljun greindist með sjúkdóminn.

Varð heilmikið um

„Það var í gangi einhver öldrunarrannsókn sem ég fór í fyrir mörgum árum. Þar var heilmargt skoðað og þar á meðal augun. Í þessari rannsókn kom í ljós að ég var með aldurstengda augnbotnahrörnun. Mér varð heilmikið um að fá þessa niðurstöðu því mér fannst ég vera ung. Ég sá pabba fyrir mér sem var orðinn hálf ósjálfbjarga en sjúkdómurinn var langt genginn hjá honum. Ég fór strax til augnlæknis sem sagði að það væri ekkert hægt að gera. Mögulega væri þó hægt að hægja á þróun sjúkdómsins með því að taka inn fæðubótarefni sem væri byggt upp samkvæmt AREDS2- formúlunni,“ segir Lilja.

Lilja segist hafa byrjað strax að taka inn fæðubótarefni byggð á AREDS2-formúlunni. „Ég hef aðlagast þessu og gleymi því dagsdaglega að ég sé með undirliggjandi augnbotnahrörnun. Núna nýt ég lífsins á þann hátt að ég horfi á útsýnið og segi við sjálfa mig: Ég ætla aldeilis að njóta þess í dag. Þegar ég frétti að AstaEye væri komið á markað þá vildi ég frekar taka það þar sem það er íslenskt, auk þess sem það inniheldur viðbætt astaxanthin sem er talið vera gott fyrir augun. Ég er þess handviss að AstaEye hafi dregið úr framgangi sjúkdómsins. Augnlæknirinn sem ég er í reglulegu eftirliti hjá er meira að segja undrandi á hvað breytingin hefur verið hægfara á augnbotnahrörnuninni,“ segir Lilja.

Augnbotnahrörnun er algengasta orsök lögblindu hjá fólki sem er 50 ára og eldra og hefur slæm áhrif á lífsgæði fólks.

Ódýrara og þægilegra að vera í áskrift

AstaEye uppfyllir öll þau viðmið sem AREDS2-rannsóknin byggir á og meira til því AstaEye inniheldur einnig astaxanthin, sem er eitt öflugasta andoxunarefni náttúrunnar. Astaxanthin dregur úr bólgum í líkamanum og hefur auk þess góð áhrif á húðina sem og augun. Astaxanthinið í AstaEye er náttúrulegt og framleitt á Íslandi úr þörungum. Lilja segist fremur vilja kaupa íslenskar vörur og að AstaEye sé ódýrara en þau efni sem hún keypti áður. Þá sé góð viðbót að efnið innihaldi astaxanthin auk AREDS2-formúlunnar. Lilja bendir einnig á ágæti þess að vera í beinni áskrift að AstaEye hjá Saga Natura.

„Það er bæði ódýrara og þægilegra að fá það sent beint heim að dyrum og þurfa ekki að muna eftir því að fara í búðinaog kaupa það. Ég er líka mjög ánægð með að fá það í áfyllingarpokum og endurnýta bara áldósina sem ég keypti í byrjun.“

Finnur ekki fyrir strengjum meðan aðrir kvarta
Sólarexemið og húðblettirnir hurfu

Athugasemdir (3)

  1. Guðmundur Baldursson

    Er Eye til í kronuni eða öðrum verslunum á selfossi var ekki í kronuni eða nettó hér í dag

    • Agnes Gunnarsdottir

      Sæll Guðmundur, já AstaEye á að vera til í Krónunni, Nettó og Apótekaranum á Selfossi.

    • Agnes Gunnarsdottir

      Sæll AstaEye á að vera til í Krónunni og þá oftast við búðarborðið einnig fæst það í öllum apótekum og á heimasíðu Saga Natura.

      mbk.
      Starfsfólk Saga Natura

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Loka
Loka Karfan mín
Loka Óskalisti
Close Nýlega skoðað
Loka
Loka
Flokkar
Karfan mín
Karfan er tóm
Byrjum að versla!
Byrjaðu að versla
0