Garðabrúða við kvíða og svefntruflunum

Notkun garðabrúðu (Valeriana officinalis) má rekja allt aftur til 5. aldar fyrir Krist þegar fylgjendur Hippókratesar notuðu jurtina við því sem kallaðist ,,móðursýki”. Til eru heimildir um notkun garðabrúðu við svefnleysi á annarri öld eftir Krist. Á miðöldum var jurtin notuð við margvíslegum kvillum svo sem bakverkjum, hósta, augnkvillum og jafnvel plágunni. Garðabrúða hefur róandi, verkjastillandi, svæfandi, verk- og vindeyðandi og krampaeyðandi áhrif. Jarðstöngull og rót jurtarinnar eru þeir hlutar sem eru nýttir til lyfjagerðar.

Klínískar rannsóknir

Áhrif garðabrúðu á svefnraskanir og svefnmynstur hafa verið töluvert rannsökuð. Erfitt er að túlka með afgerandi hætti niðurstöður rannsóknanna því þær hafa notað mismunandi lyfjablöndur og skammtastærðir auk þess sem sumar þeirra nota heilbrigða einstaklinga en aðrar fólk með svefnraskanir. Þó hafa flestar rannsóknirnar sýnt fram á róandi áhrif lyfjablöndu með virkum efnum garðabrúðu þegar hún er borin saman við lyfleysu (placebo). Eiga þær niðurstöður bæði við huglægt mat einstaklinga og hlutlægar mælingar á svefnmynstrum.

Garðabrúða er fáanleg á Íslandi undir heitinu Sefitude en það er viðurkennt jurtalyf unnið úr rót garðabrúðu og er ætlað til að draga úr vægum kvíða og svefntruflunum.

Sefitude

Sefitude er jurtalyf framleitt úr rót garðabrúðunnar sem notað hefur verið til þess að styðja við svefn í aldaraðir. Virkni sem staðfest er í klínískum rannsóknum.

Sefitude er eina lyfið á Íslandi við svefntruflunum og vægum kvíða sem fæst án lyfseðils í apótekum. Sefitude getur dregið úr kvíða og róað taugarnar sem styttir tímann sem það tekur að sofna.

Sefitude hefur einnig áhrif á gæði svefnsins, dýpkar og lengir hvert svefnstig ásamt því að draga úr líkum þess að fólk sé að vakna oft á nóttunni og stuðlar að samfelldum svefni. Það er hvorki sljóvgandi né ávanabindandi og má nota allt frá 12 ára aldri.

Hér getur þú lesið meiri fróðleik um svefn og kvíða

Einföld ráð fyrir betri svefn

Nægur og góður svefn bætir andlega heilsu, eykur vellíðan og gerir okkur betur í stakk búin til að takast á við álag og verkefni daglegs ...
Lesa meira →

Sefitude eða Melatónín fyrir góðan nætursvefn?

Það eru margar leiðir til þess að stuðla að betri hvíld og margir sem styðjast við lyf og bætiefni til þess. En hvert þeirra eru ...
Lesa meira →

Samspil svefns og kvíða

Kvíði er náttúrulegt viðbragð líkamans við erfiðum aðstæðum, álagi eða aðsteðjandi hættu. Kvíðaviðbrögð einstaklinga geta verið margvísleg og einstaklingsbundinn munur getur verið á hvenær viðbrögðin ...
Lesa meira →

Hvernig hefur svefn áhrif á líkamlega og geðræna heilsu?

Við sofum um þriðjung ævinnar. Nægur svefn hefur jákvæð áhrif á líðan okkar og svefn er nátengdur bæði líkamlegri og andlegri heilsu. Tengsl svefns við ...
Lesa meira →

5 staðreyndir um svefn, heilsu og hamingju

Svefn er ein af grunnþörfum mannsins, jafn mikilvægur eins og næring og hreyfing. Engu að síður er maðurinn eina tegundin sem að sviptir sig svefni ...
Lesa meira →

Svefninn er ekki síður mikilvægur á sumrin 

Íslenskar sumarnætur eru einstakar og kærkomnar. Þegar sólin skín á ný eftir myrkan vetur vakna margir upp af dvala og fyllast orku, en sumir eiga ...
Lesa meira →
Sefitude eða Melatónín fyrir góðan nætursvefn?
Mikilvægi svefns fyrir heilsu og hamingju
Karfan mín
Óskalisti
Nýlega skoðað
Flokkar
Karfan mín
Karfan er tóm
Byrjum að versla!
Byrjaðu að versla
0