Rosonia Foam

3.490 kr.

Rosonia Foam er græðandi froða fyrir sár á húð og óþægindi á kynfærasvæði.

Rosonia getur:

  • Verkað græðandi á sár
  • Verndað gegn sýkingum
  • Linað sviða og kláða
  • Minnkað bólgur, roða og eymsli
  • Fyrirbyggt óþægindi á kynfærasvæði
  • Aukið teygjanleika húðar
+


Lækningavara

Rosonia er einstaklega mjúk kremfroða sem dregur strax úr kláða, sviða og ertingu og vinnur gegn vægum sýkingum, verndar fyrir sýkingum, veitir raka og byggir upp heilbrigða húð. Rosonia er áhrifarík meðferð við óþægindum á ytra kynfærasvæði og hentar einnig vel á viðkvæm svæði eftir fæðingu.

Rosonia getur:

  • Verkað græðandi á sár
  • Verndað gegn sýkingum
  • Linað sviða og kláða
  • Minnkað bólgur, roða og eymsli
  • Fyrirbyggt óþægindi á kynfærasvæði
  • Aukið teygjanleika húðar

Fyrir hverja?

  • Einstaklinga sem fá þrálátar sveppa- eða vírussýkingar
  • Konur sem sem fá ertingu vegna þvagleka eða útferðar
  • Konur sem fá óþægindi í kringum blæðingar
  • Konur sem þjást af Lichen Schlerosis, eða legganga- og skapabólgu
  • Konur sem eru viðkvæmar fyrir ertingu á kynfærasvæði eftir sund

 

Rosonia myndar varnarhimnu yfir viðkomandi svæði sem verndar það frá ertandi efnum og árásum örvera úr umhverfinu. Froðuna má því einnig nota fyrirbyggjandi ásamt því að vera góð viðbótarmeðferð með lyfjum gegn bakteríu-, sveppa- og veirusýkingum. Rosonia myndar kjöraðstæður fyrir slímhúðina að gróa og endurnýja sig.

Rosonia er margprófuð og sýna niðurstöður klínískra og forklínískra rannsókna að varan minnkar verulega bólgur, sviða, kláða og einnig rispur og sprungur á kynfærum. Rannsóknir hafa meðal annars sýnt að Rosonia hentar vel konum sem hafa lichen sclerosis.

 

Innihald og notkun

Virk innihaldsefni

TIAB er einstakt efnasamband myndað úr silfurjónum* tengdum títaníumdíoxíð míkrókristöllum. Það myndar varnarhjúp yfir viðkomandi svæði sem veitir vörn gegn örverum og ertandi efnum. Hjúpurinn veitir kjöraðstæður fyrir slímhúðina að gróa og endurnýja sig.

Malva sylvestris jurtaútdráttur úr skógarstokksrós minnkar bólgur, eykur þéttni og teygjaleika húðar ásamt því að veita róa, sefa og mýkja slímhúðina.

Hýalúrónsýra er rakagjafi ásamt því að styðja við myndun varnarhjúpsins.

Gagnlegar upplýsingar

Fyrir notkun skal þvo bæði hendur og kynfærasvæði og þurrka vel. Flaskan er hrist vel fyrir notkun og haldið í uppréttri stöðu við notkun. Þunnt lag af froðu er borið á ytra kynfærasvæði og nuddað þar til þurrt, froðan er ekki þvegin af. Meðferðina má endurtaka einu sinni eða oftar fyrir daginn í allt að 10 daga eða þar til að fullur bati hefur náðst. Aukaverkanir: vægur sviði sem hverfur oftast þegar líður á meðferðina (tíðni < 10%). Engar þekktar milliverkanir eru við lyf.

*Rannsóknir sýna að silfurjónir í TIAB sambandinu frásogast ekki um húð, hvorki heila húð né rofna. Varan inniheldur 0.005% míkrósilfurjónir.

 

 

Loka Karfan mín
Loka Óskalisti
Close Nýlega skoðað
Loka
Loka
Flokkar
Karfan mín
Karfan er tóm
Byrjum að versla!
Byrjaðu að versla
0