Voxis Lakkrís – Kassi með 20 pokum
8.150 kr.
Voxis lakkrís með íslenskri hvönn – kassi með 20 pokum
Sykurlausir Voxis-hálsbrjóstsykrar með lakkrís og íslenskri hvönn. Í hverjum kassa eru 20 pokar. Verðið er fyrir einn kassa og fjöldinn í körfunni miðast við kassa.
Voxis eru íslenskir heilsumolar úr handtíndum hvannarlaufum. Þeir innihalda hvannarþykkni sem er náttúrulega ríkt af flavónóíðum og öðrum virkum plöntuefnum sem styðja við varnir líkamans.
Voxis róa hálsinn, örva munnvatnsmyndun og hjálpa til við að sefa sykurlöngun. Sætt með stevíu og án aukaefna.
Skyldar vörur
Rosonia Foam er græðandi froða fyrir sár á húð og óþægindi á kynfærasvæði.
Rosonia getur:
- Verkað græðandi á sár
- Verndað gegn sýkingum
- Linað sviða og kláða
- Minnkað bólgur, roða og eymsli
- Fyrirbyggt óþægindi á kynfærasvæði
- Aukið teygjanleika húðar
Vara seld í apótekum
AstaEye inniheldur lútein, zeaxantín ásamt vítamínum og steinefnum byggðum á AREDS2-samsetningu*. Formúlan er þróuð með það að markmiði að styðja við almenna augnheilsu og hentar þeim sem vilja huga að augunum með hækkandi aldri.
AstaEye inniheldur einnig astaxanthin, sem hefur notið vinsælda meðal þeirra sem vilja styðja við augnþægindi og almenna vellíðan augna, sérstaklega við mikla skjánotkun og útiveru.
Melatónín knýr fram svefnþörf og stuðlar að þreytu og ró.
Melatónín getur hjálpað:
- Þeim sem eru ekki með melatónín í hámarki að kvöldi vegna vaktavinnu, ferðalaga, öldrunar eða blindu
- Þegar sumarnætur eru bjartar
- Þegar skjábirta hamlar þreytutilfinningu
Rétt magn melatóníns í líkamanum heldur dægursveiflunni á réttu róli, en fari hún úr skorðum geta svefntruflanir farið að láta á sér kræla. Fyrir þau sem vinna kvöldvaktir, sitja fyrir framan tölvuskjá fram eftir kvöldi, upplifa flugþreytu, eða þau sem vakna fyrir allar aldir – getur Melatónín bætiefni hjálpað við að rétta af dægurklukkuna. Aldraðir og blindir upplifa einnig gjarnan breytingu á dægurklukkunni og minnkað magn melatóníns að kvöldi.
Hágæða Kollagen með hýalúronsýru sem styður við náttúrulega uppbyggingu bandvefs og húðar.
Kollagen getur:
- Haft góð áhrif á húð, hár og neglur
- Aukið náttúrulegan raka í húð
Magnesíum sítrat er steinefni sem stuðlar að eðlilegri starfsemi tauga- og vöðvakerfis. Magnesíum sítrat stuðlar að eðlilegum orkuefnaskiptum, dregur úr þreytu og sleni, ásamt því að stuðla að eðlilegu viðhaldi beina og tanna.
Magnesíum sítrat getur:
- Stuðlað að betri svefni
- Bætt meltingu
- Linað fótapirring
- Minnkað þreytu og streitu
Astaxanthin er andoxunarefni unnið úr smáþörungum og hefur notið vaxandi vinsælda sem innihaldsefni í fæðubótarefnum.
Íslenskt Astaxanthin getur meðal annars verið áhugaverður kostur fyrir þá sem vilja styðja við virkan lífsstíl og almenna vellíðan. Margir nota astaxanthin sem hluta af daglegri rútínu tengdri hreyfingu, húðumhirðu og útivist.
KREA – bragðbetri leið að daglegum kreatínskammti. 3 g af kreatíni í hágæða, sykurminna súkkulaði án sætuefna – einfalt, þægilegt og virkilega gott.
KREA inniheldur 3 g af kreatíni – sem er einmitt það magn sem þarf til að fá fram jákvæð áhrif kreatíns á heilsuna.
KREA er fáanlegt í völdum matvöruverslunum – sjá sölustaði á krea.is
SagaCranberry+ er einstök vítamínblanda sem styður við heilbrigða þvagblöðru og þvagrás. Endurteknar þvagfærasýkingar geta valdið einkennum ofvirkrar þvagblöðru.
SagaCranberry+ getur:
- Viðhaldið heilbrigðri þvagrás
- Viðhaldið heilbrigðri þvagblöðru
- Styrkt ónæmiskerfið
AstaSkin er sérsniðin blanda með innihaldsefnum sem tengjast húðhirðu og almennri vellíðan.
AstaSkin inniheldur meðal annars klínískt rannsakað seramíð, kollagen, astaxanthin (6 mg) ásamt A-, B-, C-, D- og E-vítamínum.
Innihaldsefnin í AstaSkin eru valin með það að markmiði að styðja við húðina og henta vel þeim sem vilja huga að daglegri húðumhirðu innan frá.
Energy er sérstaklega samsett vítamínblanda til að skerpa athygli og gefa aukna orku.
Energy getur:
- Dregið úr þreytu
- Dregið úr streitu
- Bætt einbeitingu
Sefitude er eina svefn og kvíðalyfið sem fæst án lyfseðils í apótekum á Íslandi.
Sefitude getur:
- Stytt tímann sem það tekur að sofna
- Bætt svefngæði
- Minnkað kvíða
- Róað taugakerfið svo auðveldara sé að festa svefn
Sefitude er viðurkennt jurtalyf og því einungis selt í apótekum.
Eftirafandi apótek eru með Sefitude í netsölu:
Voxis engifer með íslenskri hvönn – kassi með 20 pokum
Sykurlausir Voxis-hálsbrjóstsykrar með engifer og íslenskri hvönn. Í hverjum kassa eru 20 pokar. Verðið er fyrir einn kassa og fjöldinn í körfunni miðast við kassa.
















