Íslenskt Astaxanthin

3.023 kr.

Þú færð 20% afslátt ef þú gerist áskrifandi

Smelltu hér til að kynna þér málið

Íslenskt Astaxanthin getur:

  • Minnkað bjúg og bólgur
  • Aukið úthald og endurheimt
  • Verndað vöðva, hjarta- og æðakerfi, heila, augu og húð
  • Verndað húðina gegn UV geislum sólar
+


Íslenskt Astaxanthin – Fæðubótarefni

Astaxanthin er eitt öflugasta andoxunarefni náttúrunnar, unnið úr algea þörungum og er talið vera 6.000 sinnum öflugra en C-vítamín.

Íslenskt Astaxanthin getur:

  • Minnkað bjúg og bólgur
  • Aukið úthald og endurheimt
  • Verndað vöðva, hjarta- og æðakerfi, heila, augu og húð
  • Verndað húðina gegn UV geislum sólar

Fyrir hverja?

  • Íþróttafólk sem vill auka endurheimt
  • Fólk sem er með bjúg og bólgur í líkamanum
  • Einstaklinga sem glíma við eymsli í liðum
  • Einstaklinga sem glíma við exem þ.m.t. sólarexem

Birtar hafa verið yfir 200 ritrýndar vísindagreinar sem sýna fram á gagnsemi astaxanthin fyrir líkamann. Rannsóknir hafa sýnt fram á jákvæð áhrif á úthald, orku og endurheimt. Astaxanthin er talið auka þrek og vöðvamyndun við æfingar auk þess sem það er talið veita betri endurheimt vöðva eftir átök. Rannsóknir sýna einnig að astaxanthin ver húðina gegn útfjólubláum geislum sólar og dragi þar með úr ótímabærri öldrun húðarinnar. Talið er að húðin þorni síður og hrukkist eins og gerist hjá flestum þegar aldurinn færist yfir. Astaxanthin getur einnig virkað vel á bólgur í liðum og styrkt augnheilsu.

Inniheldur astaxanthin frá íslenska fyrirtækinu Algalíf, sem staðsett er í Reykjanesbæ. Algalíf er dyggur samstarfsaðili Saga Natura í þróun á virkum náttúruefnum í hæsta gæðaflokki. Astaxanthin er unnið úr algea þörungum með hreinu íslensku vatni og orku. Inniheldur einnig E-vítamín.

Hægt er að gerast áskrifandi með því að smella hér.

Innihald og notkun

Innihald: Sólblómaolía, Astaxanthin-rík olía úr smáþörungum (Haematococcus pluvialis), perla (breytt sterkja, (óerfðabreytt), glýserín, karragenan, natríum karbónat), E-vítamín (náttúrulegt tókóferól).

Ráðlagður daglegur neysluskammtur: 2 perlur á dag með mat.

2 perlur innihalda:
Astaxanthin: 8 mg
E-vítamín: 8 mg*
*67% af næringarviðmiði fyrir fullorðna.

Pakkningarstærð: 60 stk.

Geymist á þurrum og svölum stað þar sem börn ná ekki til.
Engir þekktir ofnæmisvaldar í vörunni.

Ekki er ráðlagt að neyta meira af vörunni en ráðlagður daglegur neysluskammtur segir til um.
Fæðubótarefni koma ekki í stað fjölbreyttrar og hollrar fæðu.

Barnshafandi konum, konur með barn á brjósti, börn undir 18 ára aldri og fólk með sjúkdóma er ávallt ráðlagt að leita álits læknis eða annars sérfræðings áður en tekin eru inn fæðubótarefni.

 

Loka Karfan mín
Loka Óskalisti
Close Nýlega skoðað
Loka
Loka
Flokkar
Karfan mín
Karfan er tóm
Byrjum að versla!
Byrjaðu að versla
0