AstaEye
4.319 kr.
Þú færð 20% afslátt ef þú gerist áskrifandi
Smelltu hér til að kynna þér málið
AstaEye er oft tekið við:
- Augnbotnahrörnun
- Augnþurrki
- Hrakandi sjón
- Til að bæta augnheilsu
AstaEye – Augnlæknar mæla með
AstaEye er einstök vítamínblanda sem er sérhönnuð til þess að viðhalda góðri augnheilsu og koma í veg fyrir hrörnun augnabotna. AstaEye inniheldur andoxunarefnið astaxanthin, lútein, zeaxantín ásamt fleiri vítamínum og steinefnum, sérstaklega samsett til að vernda augun og vinna gegn augnbotnahrörnun.
AstaEye er byggt á niðurstöðum AREDS2* rannsóknarinnar þar sem kom í ljós að þeir þátttakendur sem hófu rannsóknina með litlu magni af lúteini og zeaxantíni í mataræði, en fengu viðbætt lútein og zeaxantín á meðan rannsókninni stóð voru 25 prósent ólíklegri til þess að þróa með sér augnbotnahrörnun á efri árum samanborið við þátttakendur sem voru á svipuðu mataræði en fengu ekki viðbætt lútein og zeaxantín.
Astaxanthini var bætt við vöruna þar sem talið er að astaxanthin hafi jákvæð áhrif á augnbotna ásamt því að minnka líkurnar á augnþreytu- og þurrki sem svo margir upplifa með hækkandi aldri.
Augnbotnahrörnun er sjúkdómur sem leggst á miðgróf sjónhimnu í augnbotnum og skerðir sjónskerpu og lestrarsjón. Sjúkdómurinn er algengasta orsök lögblindu á Íslandi hjá einstaklingum eldri en 50 ára. Hrörnun í augnbotnum er algengari með hækkandi aldri. Hægt er að hægja á sjúkdómnum og draga úr líkum á hrörnun með inntöku vítamína.
*AREDS2 rannsókn National Eye Institute er skrásett vörumerki United States Department of Health and Human Services.
Innihald og notkun
Innihald: Askorbínsýra (C-vítamín), d-alfa-tókóferýlsúksínat (E-vítamín), Astaxanthin-ríkir smáþörungar (Haematococcus pluvialis), hylki úr jurtabeðmi (HPMC, litarefni: járnoxíð), lútein og zeaxanthin (úr morgunfrú), sinkoxíð, hrísgrjónamjöl, magnesíum sterat, koparoxíð.
Ráðlagður daglegur neysluskammtur: 2 hylki á dag með mat.
Hver dagsskammtur inniheldur:
- Astaxanthin 4 mg
- Lutein 10 mg – Zeaxanthin 2 mg
- Zeaxanthin 2 mg
- C-vítamín 500 mg (625% NV)
- E-vítamín 270 mg (2250% NV)
- Kopar 2 mg (200% NV)
- Sink 25 mg (250% NV)
Pakkningarstærð: 60 hylki.
Geymist á þurrum og svölum stað þar sem börn ná ekki til.
Ekki er ráðlagt að neyta meira af vörunni en ráðlagður daglegur neysluskammtur segir til um.
Fæðubótarefni koma ekki í stað fjölbreyttrar og hollrar fæðu.
Barnshafandi konum, konur með barn á brjósti, börn undir 18 ára aldri og fólk með sjúkdóma er ávallt ráðlagt að leita álits læknis eða annars sérfræðings áður en tekin eru inn fæðubótarefni.
Byggt á 3 umsögnum
100% | ||
0% | ||
0% | ||
0% | ||
0% |
3 umsagnir fyrir AstaEye -
Skyldar vörur
Þú færð 20% afslátt ef þú gerist áskrifandi
Smelltu hér til að kynna þér málið
SagaPro er oft tekið til þess að:
- Bæta svefn með því að fækka salernisferðum á nóttu
- Fækka salernisferðum í löngum göngum, hjólreiðum, golfi og skíðum
- Bæta lífsgæði hjá einstaklingum með ofvirka þvagblöðru
- Getur dregið úr bólgum
Þú færð 20% afslátt ef þú gerist áskrifandi
Smelltu hér til að kynna þér málið
SagaMemo er oft tekið til að:
- Bæta minni
- Viðhalda góðri heilastarfsemi
- Viðhalda vitsmunalegri starfsemi
Þú færð 20% afslátt ef þú gerist áskrifandi
Smelltu hér til að kynna þér málið
AstaSkin er oft tekið til þess að bæta:
- Heilbrigði húðarinnar
- Exem
- Þurra húð
- Varnir húðarinnar gegn UV geislum sólarinnar
- Sólarexem
Þú færð 20% afslátt ef þú gerist áskrifandi
Smelltu hér til að kynna þér málið
Íslenskt astaxanthin er oft tekið til þess að:
- Vernda húðina gegn útfjólubláum geislum sólar
- Viðhalda raka húðarinnar
- Minnka bjúg og bólgur
- Auka úthald
- Fá betri endurheimt
Guðjón K. –
Þessi vara hefur hjálpað mér að berjast við augnbotnahrörnun
Rós –
Byrjaði að taka AstraEye fyrir nokkru og finn strax mun á bæði sjón og augnþurrki.
Lilja Jónasdóttir –
Ég var greind með augnbotnahrörnun fyrir 11 árum. Fór strax þá að nota innflutt lyf með víta- og steinefnum sem byggð voru á AREDS rannsókn. Ég skifti yfir í AstaEye strax og ég frétti að til væri sambærilegt lyf sem framleitt er á Íslandi. Að auki er andoxunarefni í íslensku lyfjablöndunni. Meðferðin hefur gengið það vel að augnlæknirinn minn spurði mig í síðustu skoðun hvað ég hefði verið að gera, sjúkdómurinn hafði staðið í stað, eða jafnvel dregið aðeins úr honum. Tvö ár voru liðin frá síðustu skoðun. Mér er ljóst að lækning er ólíkleg, en mikils virði ef hægt er að hægja verulega á hrörnuninni.