pH-gildi – afhverju skiptir það máli?

Við gefum sýrustigi (pH-gildi) húðar og hárs mikinn gaum, en hversu oft huga konur að sýrustiginu „þarna niðri“? Þótt það sé ósýnilegt, er rétt pH-gildi ein mikilvægasta vörnin sem líkami konunnar hefur gegn óþægindum, kláða og sýkingum.

Hvað er pH-gildi og af hverju skiptir það máli?

Sýrustig er mælt á skalanum 0 til 14, þar sem 7 er hlutlaust (eins og hreint vatn). Gildi undir 7 teljast súr, en gildi yfir 7 teljast basísk.

Í heilbrigðu ástandi er umhverfi legganga náttúrulega súrt, með pH-gildi á bilinu 3,8 til 4,5. Þetta lága sýrustig er ekki tilviljun; það skapar umhverfi þar sem góðgerlar, sérstaklega mjólkursýrubakteríur (Lactobacilli), þrífast. Þessar bakteríur framleiða mjólkursýru sem verndar slímhúðina og kemur í veg fyrir að óæskilegar örverur og sveppir nái að fjölga sér.

 Venjuleg sápa getur truflað jafnvægið

Algengar sturtusápur og jafnvel mildar líkamssápur eru oft með pH-gildi á bilinu 5,5 til 8. Þegar slíkar vörur eru notaðar á viðkvæmustu svæðin, getur það hækkað sýrustigið og veikt náttúrulegar varnir líkamans.

Þegar pH-gildið hækkar og umhverfið verður basískara:

  • Slæmar bakteríur geta fengið tækifæri til að fjölga sér, sem getur leitt til breyttrar útferðar og lyktar.
  • Sveppir geta átt auðveldara með að hreiðra um sig.
  • Slímhúðin getur orðið þurr, ert og orðið viðkvæm fyrir sprungum.

Gullna reglan: Vatn er oftast nóg til hreinsunar á ytri kynfærum. Ef nota á hreinsi, skal hann vera með lágu pH-gildi og ætlaður þessu svæði. Mikilvægt er að skola aldrei upp í leggöngin (skolun/douching), þar sem það raskar örveruflórunni.

Hvenær getur sýrustigið í leggöngunum raskast?

Líkami konunnar fer í gegnum ýmsar tímabil og aðstæður þar sem pH-gildið getur hækkað tímabundið:

  • Tíðarhringurinn: Blóð hefur hærra pH-gildi (um 7,4) en leggöngin og getur valdið óþægindum eftir blæðingar.
  • Kynlíf: pH-gildi sæðis er basískt (7,2–8,0), sem getur breytt jafnvæginu tímabundið.
  • Breytingaskeiðið: Þegar estrógenmagn minnkar verður slímhúðin þynnri og pH-gildið hækkar náttúrulega.
  • Lyfjanotkun: Sýklalyf drepa bæði góðar og slæmar bakteríur, sem gefur sveppum oft svigrúm.
  • Meðganga og getnaðarvarnir: Hormónabreytingar meðgöngu og getnaðarvarnir sem innihalda hormón hafa bein áhrif á sýrustig og raka í slímhúð.

Að skilja mikilvægi pH-gildisins er lykillinn að betra kynheilbrigði og vellíðan. Með því að forðast sterkar sápur og grípa til Rosonia þegar fyrstu einkenni óþæginda láta á sér kræla, tryggir þú að þetta ósýnilega varnarkerfi vinni með þér, en ekki gegn þér.

Rosonia: Stuðningur við endurheimt jafnvægis

Stundum raskast jafnvægið þrátt fyrir góða umhirðu. Hvort sem það er vegna lyfjanotkunar, hormónabreytinga eða lífsstíls, þarf líkaminn stundum hjálp við að finna „núllpunktinn“ sinn á ný.

Vörulínan frá Rosonia (froða og vagicaps) er sérstaklega hönnuð til að styðja við þetta ferli án þess að nota sterk efni eða hormóna.

  • Rosonia Foam: Mild froða sem inniheldur hýalúrónsýru og silfurjónir. Hún gefur raka, dregur úr kláða og hjálpar til við að græða litlar sprungur eða ertingu í slímhúðinni.
  • Rosonia Vagicaps: Hylki sem sett er upp í leggöng. Þau styðja við náttúrulega örveruflóru og hjálpa til við að viðhalda réttu sýrustigi þegar þess er mest þörf.
Líffræðin á bak við janúar-þreytuna: Af hverju er svona erfitt að komast í gang?

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Karfan mín
Óskalisti
Nýlega skoðað
Flokkar
Karfan mín
Karfan er tóm
Byrjum að versla!
Byrjaðu að versla
0