Kristín Sif vill verða hraust og hamingjusamt gamalmenni

Hin brosmilda Kristín Sif þekkja margir sem útvarpskonu á K100. Kristín Sif ber þó mun fleiri hatta en það, en hún er einnig næringarþjálfari hjá ITSmacros, boxari,  Crossfitþjálfari og keppnismanneskja í Crossfit. Þar fyrir utan er hún nýlega byrjuð að taka að sér að veislustýra í hinum ýmsu veislum ásamt sínum heittelskaða Stefáni Jakobssyni eða Stebba Jak eins og flestir kalla hann. 

,,Ég hef gaman að því að leika mér sem mest enda trúi ég því að fullorðið fólk leiki sér ekki nægilega mikið í lífinu. Það að ég leiki mér þýðir þó ekki að ég sé ekki fagleg í því sem ég geri enda er ég afar metnaðarfull manneskja og geri vel það sem ég tek mér fyrir hendur . Aftur á móti er mikilvægt að gleyma aldrei barninu og gleðinni í sér og til þess að tryggja það þarf maður að hugsa vel um sjálfan sig. Eitt af markmiðum mínum í lífinu er að vera hraust og hamingjusamt gamalmenni. Þá skiptir máli að hreyfa sig, borða vel, drekka vel af vatni og nota réttu bætiefnin. Margir halda að það nægi að borða bara fjölbreyttan og hollan mat til að tryggja öll bætiefni, en það getur reynst erfiðara en margir halda.“ 

Ég er búin að nota vörurnar frá Saga Natura lengi og finn mjög vel fyrir því hvað þær gera mér gott.

Ég nota meðal annars Íslenskt Astaxanthin og AstaSkin, en það sem mér finnst svo frábært við þessar vörur hvað húðin mín er ótrúlega heilbrigð og falleg. Mikil útivera varð oft til þess að ég var pirruð í húðinni eða fékk bólgur og roða í andlitið en ég er alveg hætt að finna fyrir slíku  auk þess sem mér finnst húðin mín almennt miklu heilbrigðari. Ég er að fara að gifta mig í haust og því finnst mér mjög mikilvægt að líta vel út og húðin að sjálfsögðu  skiptir töluverðu máli þegar maður vill vera fínn og sætur með góða frísklega húð. Ekki skemmir fyrir að inntaka á Íslensku Astaxanthin og AstaSkin vinnur gegn hrukkum og fínum línum ásamt því að draga úr öldrun húðarinnar. Leyndarmálið sem ég komst að með Íslensku Astaxanthin er að það dregur úr bjúgum og bólgum sem er algjört æði og fullkomin vara fyrir mig sem íþróttamanneskju því það hefur aukið úthald mitt og endurheimt til muna.

Kristín Sif er með mörg járn í eldinum og stefnir hún að því boxa að fullum krafti og taka þátt í Crossfit mótum í haust. Þá eru mörg spennandi verkefni framundan hjá Kristínu á K100 svo og veislustjórnin, sem hún nýtur að gera með unnusta sínum honum Stefáni.

,,Það er því nóg að gera, fyrir utan að skipuleggja brúðkaupið okkar. En það  besta er að þetta er ALLT SAMAN skemmtilegt!“ segir Kristín brosandi.  

Í vinnu sinni þarf hún að vera úthvíld því það krefst mikillar einbeitingar og orku að hugsa fljótt og gefa af sér í beinni útsendingu. ,,Góð heilaheilsa er mikilvægur þáttur í að halda góðri alhliða heilsu og því tek ég inn SagaMemo á hverjum degi, sem mér finnst hjálpa mér að viðhalda góðri einbeitingu. Energy nota ég stundum fyrir æfingar og svo bæti ég SagaMemo með ef ég er að fara að keppa eða gera hluti sem krefjast orku og fókus sem er bæði í leik, vinnu og þegar ég er að keppa.“ 

,,Ég gæti haldið áfram að dásama allar þessar vörur sem Saga Natura hafa upp á að bjóða hjá sér enda rótgróið íslenskt fyrirtæki sem ég veit að leggja mikinn metnað í vöruþróun og gæði.“

 

Ný betrumbætt formúla

Saga Natura hefur endurbætt hina vinsælu AstaSkin vöru enn frekar með því að auka við E-vítamíni í blöndunni. Þá hefur sú breyting verið gerð að hylkin stækka örlítið en kosturinn við það er sá að aðeins er þá þörf á því að taka inn eitt hylki í stað tveggja áður. Sólveig Stefánsdóttir framkvæmdastjóri Saga Natura segir að Saga Natura hafi nýverið hafið samstarf með hinu íslenska fyrirtæki PharmArctica sem staðsett er á Grenivík. ,,PharmArctica er virkilega frambærilegt og vaxandi íslenskt fyrirtæki. Þau byggja á mikilli reynslu í framleiðslu fæðubótarefna og þau fylgja ströngum gæðaferlum til að tryggja gæði vörunnar. Þá er PharmArctica með GMP vottun (e. Good Manufacturing Practice), sem staðfestir þá verk- og gæðaferla sem eru til staðar til að tryggja að framleiðsluaðferðir séu með allra besta móti. Þá sérhæfir PharmArctica sig ekki aðeins í framleiðslu á fæðubótarefnum heldur einnig ýmsum snyrtivörum, smyrslum, sápum og sótthreinsandi lausnum.“

Aðrar nýjungar sem Saga Natura er að innleiða þessa dagana eru lífniðurbrjótanlegir pokar fyrir þá sem eru í mánaðarlegri áskrift. Pokana má flokka með lífrænum úrgangi eða í almennt heimilissorp. Það stuðlar að enn vistvænni vöruframboði Saga Natura.  

Við hvetjum viðskiptavini Saga Natura að nýta sér góð kjör á Heilsudögum sem í boði eru í ýmsum verslunum í ágúst og september.

Hægt er að nálgast vörur Saga Natura í öllum apótekum, helstu matvörubúðum og á heimasíðu Saga Natura. 

Hægt er að lesa viðtalið í heild sinni hér

Hægt er að skrá sig í áskrift án skuldbindinga, fá fría heimsendingu og ávallt 20% afslátt hér

SagaPro er líka fyrir konur
Sigraðist á ítrekuðum áföllum með jákvæðnina að vopni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Loka
Loka Karfan mín
Loka Óskalisti
Close Nýlega skoðað
Loka
Loka
Flokkar
Karfan mín
Karfan er tóm
Byrjum að versla!
Byrjaðu að versla
0