Sumarið er dásamlegur tími – en sólin, vindurinn og stöðugar hitabreytingar geta haft áhrif á húðina okkar. Þó sólarvörn og rakakrem séu mikilvæg, þá skiptir líka máli hvað við gerum innan frá. Hér skoðum við hvernig vítamín og bætiefni eins og AstaSkin geta styrkt húðina á sumrin.
Með AstaSkin fær húðin öfluga vörn og næringu innan frá, þar sem einstök innihaldsefni vinna saman að því að verja, endurnýja og styrkja húðina.
Astaxanthin – náttúruleg vörn gegn sólinni
AstaSkin inniheldur astaxanthin, eitt öflugasta andoxunarefni náttúrunnar, sem unnið er úr rauðum þörungum. Það hefur sýnt sig í rannsóknum að astaxanthin geti:
- Aukið raka og teygjanleika húðar
- Minnkað fíngerðar línur og öldrunareinkenni
- Verndað húðfrumur gegn geislum sólar (UVB)
- Unnið gegn oxunarálagi sem eykst í sólarljósi
Myoceram® – styrkir húðina og heldur í raka
Myoceram® inniheldur seramíð sem eru náttúruleg fituefni sem eru mikilvægur hluti af varnarlagi húðarinnar. Þau gegna lykilhlutverki í að viðhalda rakavörn húðarinnar og fyrirbyggja rakatap – sem er sérstaklega mikilvægt yfir sumarið þegar húðin þornar auðveldlega. Með Myoceram® fær húðin:
- Betri vörn gegn umhverfisáreiti
- Aukna mýkt og minni viðkvæmni
- Stuðning við heilbrigða húðvörn
- Getur hjálpað gegn þurrki og sprunginni húð
Myoceram er sérstaklega gagnlegt yfir sumarið fyrir þá sem upplifa þurrk eða húð sem verður viðkvæm í sól.
Kollagen – byggingarefni húðarinnar
Kollagen er prótein sem viðheldur stinnleika og teygjanleika húðarinnar, en framleiðsla þess minnkar með aldri og vegna álags eins og sólarljóss. Kollagen, sem getur:
- Stuðlað að stinnari og sléttari húð
- Hjálpað til við að draga úr fínum línum
- Stutt við endurnýjun húðar eftir sól
A-vítamín – fyrir endurnýjun og ljóma
A-vítamín er mikilvægt fyrir frumuskiptingu í húð og getur:
- Hjálpað til við að endurnýja yfirborð húðarinnar
- Unnið gegn litabreytingum og öldrunareinkennum
- Aukið ljóma og bætt áferð húðar
E-vítamín – náttúruleg húðvernd
E-vítamín er þekkt fyrir andoxunarvirkni sína og hefur verndandi áhrif á frumuhimnur. Það:
- Dregur úr áhrifum sindurefna (frjálsra radíkala)
- Vinnur gegn UV-skemmdum
- Dregur úr bólgum og roða
Sameiginleg áhrif fyrir sumarið
Með reglulegri notkun AstaSkin fær húðin:
✅ Vernd gegn oxunarálagi og UV-skemmdum
✅ Betra rakajafnvægi og heilbrigðari húð
✅ Stinnari húð og minni öldrunareinkenni
✅ Ljóma, mýkt og jafnvægi innan frá
AstaSkin – Áskrift
Frá:4.782 kr.Original price was: 4.782 kr..3.826 kr.Current price is: 3.826 kr.. / mánaðarlegaAstaSkin
4.782 kr.
Skildu eftir svar