Staðreyndir um blöðrubólgu sem allar konur ættu að vita

Stór hluti kvenna glímir við endurteknar þvagfærasýkingar í gegnum ævina. Rannsóknir sýna að um 70% kvenna finna fyrir einkennum þvagfærasýkingar einhvern tímann á lífsleiðinni. Þær konur sem hafa upplifað sáran sviða við þvaglát og stöðuga þörf til að pissa vita að það er eitthvað sem þær gætu alveg hugsað sér að vera án. Allar konur ættu því að þekkja einkennin vel, til þess að geta gripið snemma inn í og aukið líkurnar á því að hægt sé að meðhöndla sýkinguna án sýklalyfja.

Þvagrásarop kvenna er nálægt bæði endaþarmsopinu, svo það eru miklar líkur á því að bakteríur smitist á milli. Þó þvagblaðran sé nokkuð vel varin gegn óviðkomandi bakteríum og sýklum úr umhverfinu, kemur fyrir að bakteríur loða við slímhúðina og komast upp þvagrásina og valda sýkingu. Konur hafa líka styttri þvagrás en karlar og því enn meiri líkur á að bakteríur geti ferðast upp í þvagblöðruna og valdið sýkingu. 

Talað er um króníska blöðrubólgu þegar einstaklingur fær þrjár eða fleiri sýkingar á ári. Ástæða krónískrar blöðrubólgu eru margvíslegar og mismunandi eftir æviskeiðum. Erfðaþættir kvenna, magn hormóna á meðgöngu eða við tíðahvörf sem og sjúkdómar geta haft áhrif á slímhúðina í þvagfærunum, orsakað minna viðnám og gert sýklum auðveldar fyrir að ferðast upp þvagrásina og valda sýkingu.

Algengast er að bakterían E.coli úr endaþarminum valdi sýkingum í þvagfærum. Þegar við stundum kynlíf geta bakteríur ferðast á milli og komist upp þvagrásina. Þess vegna er mjög mikilvægt að konur muni alltaf að pissa eftir kynlíf, en með því er líklegra að bakteríurnar skolist út úr þvagrásinni, hafi þær smitast á milli.

Konur ættu alltaf að þurrka sér frá píku aftur að rassi, en með því eru minni líkur á því að bakteríur frá endaþarmi smitist yfir í þvagrásina.

Nokkuð algengt er að konur fái blöðrubólgu á meðgöngu. Aukin sýkingarhætta skýrist einkum af hormónabreytingum, ásamt þeim líkamlegu breytingum sem líkami kvenna gengur í gegnum á meðgöngu. Dæmi um slíkar breytingar er aukinn þrýstingur á þvagblöðruna sem minnkar flæði þvagsins, konur geta átt erfiðara með að tæma blöðruna, einnig ef meðgöngusykursýki greinist. Saman geta þessar breytingar stuðlað að því að kjöraðstæður myndast fyrir vöxt baktería og þær valdi sýkingu.

Aukin vatnsdrykkja getur hjálpað til við að losa út bakteríur og sýkla, en með því að drekka vel, verða þvaglát tíðari og þvagið minna ertandi og er mikilvægt að tæma blöðruna vel. Bakteríur geta auðveldlega fjölgað sér í þvagi sem situr eftir í blöðrunni.

Erfðaþáttur sumra kvenna veldur því að bakteríur eiga auðveldara með að festast í slímhúðinni og af þeim sökum virðist blöðrubólga vera algengari í sumum fjölskyldum en öðrum. Ungar konur sem fá endurtekna blöðrubólgu, hafa oft fengið blöðrubólgu sem barn og eiga þær gjarnan móður sem hefur fengið blöðrubólgu.

Hormónabreytingarnar í líkamanum geta gert það að verkum að konur eru viðkvæmari fyrir sýkingum á breytingaskeiðinu og eftir það. 

Minnkandi framleiðsla á kvenhormóninu estrogen.

Erting í slímhúðinni og bólgubreytingar valda því að hún verður rauð, bólgin og aum sem veldur sviða þegar konur pissa. Einnig getur komið fram verkur í neðanverðum kvið.

Sumar konur finna fyrir stöðugri þörf til að pissa, jafnvel þegar þvagblaðran er tóm. 

Eldri konur geta átt erfitt með að halda þvagi. Þvagið getur einnig lyktað illa, verið dökkt og skýjað. Ef blóð er í þvagi skal leita tafarlaust til læknis.

Ef sýking greinist í þvagi er algengast að hún sé meðhöndluð með sýklalyfjum, einnig eru til jurtalyf eins og Lyngonia sem meðhöndla sýkingu í þvagfærum.

Sýklalyf eru mikilvæg til þess að meðhöndla hættulegar sýkingar, en ofnotkun þeirra getur haft slæmar afleiðingar í för með sér s.s. sýklalyfjaónæmi. Lyngonia er þar dýrmætur valkostur. Lyfið verkar staðbundið í þvagrás og hefur því ekki skaðleg áhrif á þær bakteríur sem eru nauðsynlegar fyrir okkar líkamsstarfssemi.

Lyngonia er eina lyfið við þvagfærasýkingum sem fæst án lyfseðils og því hægt að hefja meðferð um leið og fyrstu einkenna verður vart.

Trönuber til að hindra þvagfærasýkingu

Trönuber eru eitt elsta húsráðið við blöðrubólgu. Í fyrstu var talið að trönuber virkuðu með þeim hætti að gera þvagið nægilega súrt til að drepa bakteríur í þvaginu. Nú hafa klínískar rannsókir sýnt fram á að trönuberin geti komið í veg fyrir að bakteríur á borð við E.coli, sem er einn algengasti sýkingavaldur í þvagfærum, loði við veggi þvagfæranna og orsaki sýkingu.

Rannsóknir styðja þannig notkun SagaCranberry+ til að koma í veg fyrir þvagfærasýkingar. Trönuberjaextraktinn í SagaCranberry+, Oximacro, er klínískt rannsakaður og sýndu niðurstöður klínískrar rannsóknar, að bakteríum í þvagi fækkaði  umtalsvert við inntöku á extraktinum yfir tiltekið tímabil. 

Sortulyng (Arctostaphylos uva-ursi) hefur verið notað til lyfjagerðar í aldaraðir. Það hefur verið notað við ýmsum kvillum, t.a.m til að meðhöndla þvagfærasýkingar. Áður en súlfalyf voru uppgötvuð var aðallega notað sortulyng við blöðrubólgu og skyldum sýkingum. Enskt heiti jurtarinnar er bearberry og eru laufblöð hennar nýtt til lyfjagerðar.

Lyngonia er einstök meðferð án sýklalyfja til meðhöndlunar á vægum, endurteknum þvagfærasýkingum kvenna. Lyfið inniheldur úrdrátt úr sortulyngi sem hefur þekkta verkun og langa sögu um virkni gegn vægri blöðrubólgu.

Klínísk rannsókn* sem birt var árið 2021 sýndi að 61% kvenna náðu fullum bata af þvagfærasýkingum með Lyngonia í stað meðferðar með sýklalyfjum. Rannsóknin markar tímamót þar sem sýklalyfjaónæmi ógnar verulega heilbrigði okkar og er mikið kapp lagt á að finna önnur meðferðarúrræði. Lyngonia er eina lausasölulyfið fáanlegt við endurteknum þvagfærasýkingum hjá konum.

*Ildikó G, et al. Clin Microbiol Infect. 2021; 27 (10): 1441-1447.

Meiri fróðleikur um blöðrubólgu

Hvað er sýklalyfjaónæmi?

Sýklalyfjaónæmi er þegar bakteríur verða ónæmar fyrir sýklalyfjum. Þá duga lyfin ekki til að drepa bakteríurnar og þær geta valdið alvarlegum sýkingum óáreittar. Bakteríur búa

Lesa meira »

Endurtekin blöðrubólga – Hvað er til ráða?

Þvagfærasýkingar hafa áhrif á stóran hluta mannkyns. Um það bil 150 milljónir kvenna um allan heim fá þvagfærasýkingu á hverju ári. Meira en helmingur kvenna fær þvagfærasýkingu að minnsta kosti einu sinni á lífsleiðinni, en jafnvel er talið að allt að 70% kvenna hafi einhvern tíma fundið fyrir einkennum hennar.

Lesa meira »

Sortulyng – Náttúrulegt ráð við blöðrubólgu

Blöðrubólgur eða þvagfærasýkingar eru sérstaklega algengar á meðal kvenna. Sumar fá slíkar sýkingar endurtekið. Lyngonia frá Florealis er viðurkennt jurtalyf við endurteknum þvagfærasýkingum hjá konum en það inniheldur útdrátt úr sortulyngi. Um er að ræða fyrsta jurtalyfið á Íslandi sem var viðurkennt af Lyfjastofnun. Þar sem að sortulyngið í Lyngonia er á meðal elstu lækningajurta sem notaðar hafa verið á Íslandi þá tókum við saman smá fróðleik um þessa frábæru jurt og lyfjavirkni hennar.

Lesa meira »
Close My Cart
Close Wishlist
Close Recently Viewed
Close
Close
Categories
Karfan mín
Karfan er tóm
Byrjum að versla!
Byrjaðu að versla
0