96% upplifa aukin lífsgæði með SagaPro

Neytendakönnun á gagnsemi SagaPro, sem framkvæmd var í febrúar 2023, hefur veitt dýrmæta innsýn á viðbrögðum notenda við vörunni. Könnunin var lögð fyrir áskrifendur Saga Natura/Florealis og var unnin í samstarfi við Dr. Þorlák Karlsson, sérfræðing í rannsóknaraðferðum og fyrrum prófessor við Háskólann í Reykjavík.

Svarhlutfall 62,4%

Af 255 einstaklingum sem boðið var að taka þátt svöruðu 159, sem jafngildir þátttökuhlutfalli upp á 62,4%. Þetta hlutfall bendir til verulegs áhuga á SagaPro og gefur góða innsýn í virkni vörunnar frá sjónarhóli neytenda.

Algengasta ástæða fyrir notkun SagaPro eru meiri lífsgæði og betri svefn

SagaPro er þekktast fyrir að meðhöndla næturþvaglát, þ.e. þörfina fyrir að pissa á nóttunni. Því kemur ekki á óvart að meirihluti neytenda eða 66% hafi byrjað að taka SagaPro til að draga úr þeim einkennum. Aðrar ástæður voru einnig nefndar, sumar tengdar tíðni, á meðan aðrar nefndu bráða þörf, þvagleka eða óþægindi.

84% höfðu notað SagaPro í meira en eitt ár

Flestir þátttakendur könnunarinnar höfðu notað SagaPro til lengri tíma, 84% í meira en eitt ár. Töluverður fjöldi hafði notað SagaPro í yfir fimm ár (22%) og þar af höfðu tæp 5% af heildarþátttakendum notað SagaPro í meira en 10 ár. Þetta bendir til mikillar tryggðar við vöruna, sem staðfestir virkni hennar við að draga úr einkennum tengdum ofvirkri þvagblöðru.

96% upplifa aukin lífsgæði með SagaPro

Meirihluti þátttakenda í rannsókninni, 71% upplifði fækkun á næturþvaglátum sem áhrif af notkun SagaPro og fækkaði ferðum á klósettið að næturlagi um að meðaltali 1,5 skipti og 2 skipti að degi til.  96% þátttakenda í könnuninni sögðu að notkun á SagaPro hefði bætt lífsgæði þeirra. Rannsóknir hafa sýnt að ofvirk þvagblaðra getur haft víðtæk áhrif á líf fólks og valdið svefnleysi, kvíða og þunglyndi. Að draga úr einkennum ofvirkrar þvagblöðru getur því bætt lífsgæði almennt.  

Helstu niðurstöður könnunarinnar eru eftirfarandi:

  • Næturþvaglát er algengasta ástæðan fyrir notkun SagaPro.
  • Margir þátttakendur upplifðu minnkun tveggja eða fleiri einkenna með notkun SagaPro.
  • SagaPro notendur eru líklegir til að nota vöruna sem langtímalausn.
  • Karlkyns þátttakendur eru líklegri til að nota SagaPro til að draga úr næturþvagláti.
  • Kvenkyns þátttakendur eru líklegri til að nota SagaPro við ýmsar íþróttaathafnir og/eða þegar þær finna fyrir brýnni þörf á að pissa.
  • Flestir SagaPro notendur taka tvö hylki á dag, og er það mismunandi eftir einkennum hvort þeir kjósi að taka hylkin á morgnana eða seinna um daginn.
  • 96% telja að SagaPro hafi bætt lífsgæði sín.
  • 98% þátttakenda hafa tekið hlé á notkun SagaPro og fundið fyrir endurkomu einkenna ofvirkrar þvagblöðru.
  • Kvenkyns þátttakendur voru líklegri til að nota SagaPro til að bæta upplifun við útivist eða íþróttaiðkun.
  • 62% þátttakenda upplifðu minni einkenni ofvirkrar þvagblöðru innan viku frá upphafi inntöku.
  • Þátttakendur upplifðu fækkun dagþvagláta um 2,1 skipti á dag og fækkun næturþvagláta um 1,5 skipti á nóttu að meðaltali.

Niðurstöðurnar sýna greinilega að SagaPro hefur jákvæð áhrif á lífsgæði notenda og staðfesta mikilvægi vörunnar.

Algengar spurningar um píkuna
Heilsaðu vetri með heilbrigðri húð
Karfan mín
Óskalisti
Nýlega skoðað
Flokkar
Karfan mín
Karfan er tóm
Byrjum að versla!
Byrjaðu að versla
0