Íslenskt Astaxanthin – Áskrift

Frá: Original price was: 3.325 kr..Current price is: 2.660 kr.. / mánaðarlega

Veldu áskrift:


Íslenskt Astaxanthin – Fæðubótarefni

Astaxanthin er eitt öflugasta andoxunarefni náttúrunnar, unnið úr smáþörungum og er talið vera 6.000 sinnum öflugra en C-vítamín.

Íslenskt Astaxanthin getur:

  • Stutt við úthald og endurheimt
  • Haft jákvæð áhrif á húðina
  • Verndað frumur gegn oxunarálagi

Fyrir hverja?

  • Íþróttafólk sem vill auka endurheimt
  • Fólk sem er með bjúg og bólgur í líkamanum
  • Einstaklinga sem glíma við eymsli í liðum
  • Einstaklinga sem glíma við exem þ.m.t. sólarexem

Birtar hafa verið yfir 200 ritrýndar vísindagreinar sem sýna fram á gagnsemi astaxanthin fyrir líkamann. Rannsóknir hafa sýnt fram á jákvæð áhrif á úthald, orku og endurheimt. Astaxanthin er talið veita betri endurheimt vöðva eftir átök. Astaxanthin er vinsælt meðal þeirra sem eyða miklum tíma utandyra, sérstaklega í sólinni.

Inniheldur astaxanthin frá íslenska fyrirtækinu Algalíf, sem staðsett er í Reykjanesbæ. Algalíf er dyggur samstarfsaðili Saga Natura í þróun á virkum náttúruefnum í hæsta gæðaflokki. Astaxanthin er unnið úr smáþörungum með hreinu íslensku vatni og orku. Inniheldur einnig E-vítamín.

Innihald og notkun

Innihald: Sólblómaolía, Astaxanthin-rík olía úr smáþörungum (Haematococcus pluvialis), perla (breytt sterkja, (óerfðabreytt), glýserín, karragenan, natríum karbónat), E-vítamín (náttúrulegt tókóferól).

Ráðlagður daglegur neysluskammtur: 2 perlur á dag með mat.

2 perlur innihalda:
Astaxanthin: 8 mg
E-vítamín: 8 mg*
*67% af næringarviðmiði fyrir fullorðna.

Pakkningarstærð: 60 stk.

Geymist á þurrum og svölum stað þar sem börn ná ekki til.
Engir þekktir ofnæmisvaldar í vörunni.

Ekki er ráðlagt að neyta meira af vörunni en ráðlagður daglegur neysluskammtur segir til um.
Fæðubótarefni koma ekki í stað fjölbreyttrar og hollrar fæðu.

Barnshafandi konum, konur með barn á brjósti, börn undir 18 ára aldri og fólk með sjúkdóma er ávallt ráðlagt að leita álits læknis eða annars sérfræðings áður en tekin eru inn fæðubótarefni.

 

Vörunúmer: 10082 Flokkur: 
Karfan mín
Óskalisti
Nýlega skoðað
Flokkar
Karfan mín
Karfan er tóm
Byrjum að versla!
Byrjaðu að versla
0