Í aldaraðir hefur ætihvönnin verið ein af mikilvægustu lækningajurtum landsins og skipað sérstakan sess í íslenskri menningu. Hvönnin hefur verið notuð á Íslandi allt frá landnámi og tóku víkingar með sér þurrkaða hvönn til Evrópulanda sem gjaldmiðil.
Á þeim tíma, þegar náttúran var helsti lyfjaskápur fólks, var hvönnin notuð til að bæta meltingu, losa slím úr öndunarfærum og styrkja líkamann með því að minnka spennu og bæta þrek og kraft. Einnig var hún notuð til að verjast drepsóttum á borð við bólusótt en á síðari tímum hafa rannsóknir sýnt að ætihvönnin inniheldur ýmis sýkladrepandi efni.
Fræið sem varð að hugmynd
Í byrjun 21. aldar vaknaði aftur áhugi á þessari merkilegu jurt, ekki sem þjóðtrú heldur sem rannsóknarefni þegar Sigmundur Guðbjarnason, prófessor og fyrrverandi rektor Háskóla Íslands, hóf rannsóknir á íslenskum lækningajurtum.

SagaPro varð til
Þessi rannsóknarvinna lagði grunninn að stofnun fyrirtækisins SagaMedica (síðar SagaNatura) árið 2000 og fimm árum síðar kom SagaPro á markað.
Nafnið var valið með skírskotun til blöðruhálskirtils (e. prostate) þar sem varan var upphaflega hugsuð fyrir karla sem vildu styrkja þvagfærakerfið og draga úr þrýstingi á þvagblöðru. Þótt SagaPro hafi í fyrstu verið þróað með ákveðinn notendahóp í huga kom fljótt í ljós að virknin var mun víðtækari en talið var.
Um fjörutíu plöntur voru skoðaðar og vakti ætihvönnin (Angelica archangelica) sérstaka athygli. Í kjölfar rannsóknanna fór að teiknast upp áhugaverð mynd. Fólk í kringum Sigmund byrjaði að taka hvannarlaufaþykkni og fljótlega komu fram athyglisverðar breytingar; næturferðir á klósettið urðu færri.
Minna mál með SagaPro
Í dag er SagaPro notað af fólki á öllum aldri, óháð kyni, til að auka heilbrigði þvagblöðru og draga úr tíðni salernisferða. Ofvirk þvagblaðra er hugtak sem ekki er oft notað en lýsir sér sem stöðug og skyndileg þörf fyrir að tæma blöðruna. Í slíkum tilfellum getur SagaPro veitt meiri ró í daglegu lífi og dregið úr svefntruflunum. SagaPro hefur reynst sérstaklega vel í aðstæðum þar sem gott er að fækka salernisferðum, svo sem í fjallgöngum, hlaupum, hestaferðum eða lengri ferðalögum þar sem aðgengi að salernum er takmarkað.
Þessi breiða notkun endurspeglar vel hvernig SagaPro hefur þróast í gegnum árin – úr sértækri hugmynd í fæðubótarefni sem margir nýta til að fækka salernisferðum og bæta lífsgæði.
Frá íslenskri hugmynd til alþjóðlegrar vöru
SagaPro varð fljótt þekkt á Íslandi og hefur verið á markaði í yfir tvo áratugi. Á þeim tíma hefur varan orðið hluti af daglegu lífi margra Íslendinga.
Á sama tíma hefur varan einnig ratað út fyrir landsteinana. Í dag er SagaPro selt til fjölmargra landa, meðal annars til Bandaríkjanna, Austurríkis, Sviss, Nýja-Sjálands og Singapúr, þar sem áhugi á náttúrulegum lausnum og hreinum uppruna hefur aukist jafnt og þétt. Samhliða þessari alþjóðlegu útbreiðslu hefur verið unnið að frekari rannsóknum, þar á meðal klínískum rannsóknum á Spáni og í Singapúr. Þannig hefur íslensk jurt og íslensk hugmynd fundið sér sess hjá fólki víða um heim.

Vöruþróun byggð á sama grunni
Reynslan af SagaPro hefur einnig lagt grunn að frekari vöruþróun. Dæmi þess er SagaCranberry+ en sú vara inniheldur Oximacro® trönuberjaþykkni sem hefur verið rannsakað sérstaklega með tilliti til þess að fyrirbyggja þvagfærasýkingar. Með því sameinast í einni vöru íslenskt hvannarlaufaþykkni SagaPro og sérvalið trönuberjaþykkni sem bæði styðja við heilbrigði þvagfærakerfisins.
Þannig heldur þróunin áfram, byggð á sama grunni og SagaPro – að nýta náttúruleg innihaldsefni á markvissan hátt til að styðja við daglegt líf og líðan.
Íslenskur uppruni
SagaPro er unnið úr hvannarlaufum sem eru handtínd í íslenskri náttúru og fer vinnslan alfarið fram á Íslandi þar sem hefð, þekking og nútímaleg framleiðsla mætast.
Með SagaPro lifir þessi menningararfleifð áfram í nútímalegri mynd – íslensk jurt, íslensk hugmynd og íslensk framleiðsla sem hefur hjálpað fólki í meira en 20 ár, bæði á Íslandi og erlendis.













Skildu eftir svar