Ljómaðu í sumar með AstaSkin

Sumarið er dásamlegur tími – en sólin, vindurinn og stöðugar hitabreytingar geta haft áhrif á húðina okkar. Þó sólarvörn og rakakrem séu mikilvæg, þá skiptir líka máli hvað við gerum innan frá. Hér skoðum við hvernig vítamín og bætiefni eins og AstaSkin geta styrkt húðina á sumrin.

Með AstaSkin fær húðin öfluga vörn og næringu innan frá, þar sem einstök innihaldsefni vinna saman að því að verja, endurnýja og styrkja húðina.

Astaxanthin – náttúruleg vörn gegn sólinni

AstaSkin inniheldur astaxanthin, eitt öflugasta andoxunarefni náttúrunnar, sem unnið er úr rauðum þörungum. Það hefur sýnt sig í rannsóknum að astaxanthin geti:

  • Aukið raka og teygjanleika húðar
  • Minnkað fíngerðar línur og öldrunareinkenni
  • Verndað húðfrumur gegn geislum sólar (UVB)
  • Unnið gegn oxunarálagi sem eykst í sólarljósi

Myoceram® – styrkir húðina og heldur í raka

Myoceram® inniheldur seramíð sem eru náttúruleg fituefni sem eru mikilvægur hluti af varnarlagi húðarinnar. Þau gegna lykilhlutverki í að viðhalda rakavörn húðarinnar og fyrirbyggja rakatap – sem er sérstaklega mikilvægt yfir sumarið þegar húðin þornar auðveldlega. Með Myoceram® fær húðin:

  • Betri vörn gegn umhverfisáreiti
  • Aukna mýkt og minni viðkvæmni
  • Stuðning við heilbrigða húðvörn
  • Getur hjálpað gegn þurrki og sprunginni húð

Myoceram er sérstaklega gagnlegt yfir sumarið fyrir þá sem upplifa þurrk eða húð sem verður viðkvæm í sól.

Kollagen – byggingarefni húðarinnar

Kollagen er prótein sem viðheldur stinnleika og teygjanleika húðarinnar, en framleiðsla þess minnkar með aldri og vegna álags eins og sólarljóss. Kollagen, sem getur:

  • Stuðlað að stinnari og sléttari húð
  • Hjálpað til við að draga úr fínum línum
  • Stutt við endurnýjun húðar eftir sól

A-vítamín – fyrir endurnýjun og ljóma

A-vítamín er mikilvægt fyrir frumuskiptingu í húð og getur:

  • Hjálpað til við að endurnýja yfirborð húðarinnar
  • Unnið gegn litabreytingum og öldrunareinkennum
  • Aukið ljóma og bætt áferð húðar

E-vítamín – náttúruleg húðvernd

E-vítamín er þekkt fyrir andoxunarvirkni sína og hefur verndandi áhrif á frumuhimnur. Það:

  • Dregur úr áhrifum sindurefna (frjálsra radíkala)
  • Vinnur gegn UV-skemmdum
  • Dregur úr bólgum og roða

Sameiginleg áhrif fyrir sumarið

Með reglulegri notkun AstaSkin fær húðin:

Vernd gegn oxunarálagi og UV-skemmdum
Betra rakajafnvægi og heilbrigðari húð
Stinnari húð og minni öldrunareinkenni
Ljóma, mýkt og jafnvægi innan frá

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Karfan mín
Óskalisti
Nýlega skoðað
Flokkar
Karfan mín
Karfan er tóm
Byrjum að versla!
Byrjaðu að versla
0