Frá íslenskri hvönn til alþjóðlegrar vöru
Í aldaraðir hefur ætihvönnin verið ein af mikilvægustu lækningajurtum landsins og skipað sérstakan sess í íslenskri menningu. Hvönnin hefur verið notuð á Íslandi allt frá landnámi og tóku víkingar með sér þurrkaða hvönn til Evrópulanda sem gjaldmiðil. Á þeim tíma, þegar náttúran var helsti lyfjaskápur fólks, var hvönnin notuð til að bæta meltingu, losa slím […]
