Smaronia

3.490 kr.

Smaronia er einstök meðferð við leggangaþurrki. Þykkir slímhúð legganga, dregur úr óþægindum við samfarir og öðrum einkennum sem geta tengst tíðarhvörfum.

Smaronia hefur viðurkennda virkni og er ætlað til meðferðar á leggangaþurrki, slímhúðarrýrnun og öðrum óþægindum í leggöngum (s.s kláða, sviða, sársauka við samfarir). Smaronia róar, smyr, nærir og veitir raka sem saman stuðla að því að bæta og viðhalda heilleika slímhúðar.

+


Lækningavara

Smaronia er einstök meðferð við leggangaþurrki. Þykkir slímhúð legganga, dregur úr óþægindum við samfarir og öðrum einkennum sem geta tengst tíðarhvörfum. Smaronia inniheldur jurtaútdrátt úr rauðsmára, hýalúrónsýru og viðurkennda efnasambandið SIAB.

Smaronia hefur viðurkennda virkni og er ætlað til meðferðar á leggangaþurrki, slímhúðarrýrnun og öðrum óþægindum í leggöngum (s.s kláða, sviða, sársauka við samfarir). Niðurstöður klínískra og forklínískra rannsókna sýna að um er að ræða áhrifaríka meðferð við kláða, þurrk og særindum í leggöngum ásamt því að bæta heilbrigði slímhúðar. Smaronia róar, smyr, nærir og veitir raka sem saman stuðla að því að bæta og viðhalda heilleika slímhúðar.

Smaronia varðveitir náttúrulegan raka legslímhúðar með því að mynda varnarhimu yfir viðkomandi svæði. Himnan verndar svæðið frá ertandi efnum og sýklum úr umhverfinu, en tíðni sýkinga í leggöngum eykst um og eftir tíðahvörf.

Rauðsmári (red clover) stuðlar að náttúrulegu hormónajafnvægi í leggöngum, ásamt þykknun og auknum teygjanleika slímhúðar og róar, smyr og nærir slímhúðina.

Hýalúrónsýra er rakagjafi ásamt því að styðja við myndun varnarhjúpsins.

SIAB er einstakt efnasamband sem myndar varnarhjúp sem viðheldur raka í slímhúð legganga, veitir vörn gegn ertandi efnum og örverum og myndar þar með kjöraðstæður fyrir slímhúðina að endurnýja sig.

 

Innihald og notkun

Virk innihaldsefni

SIAB er einstakt efnasamband myndað úr silfurjónum* tengdum silikondíoxíð míkrókristöllum. Það myndar varnarhjúp sem viðheldur raka í slímhúð legganga, veitir vörn gegn ertandi efnum og örverum og myndar þar með kjöraðstæður fyrir slímhúðina að endurnýja sig.

Rauðsmári (red clover) inniheldur efnasambönd sem stuðla að þykknun og auknum teygjanleika slímhúðar og róar, smyr og nærir slímhúðina.

Hýalúrónsýra er afburða rakagjafi ásamt því að hún styður við myndun varnarhjúpsins.

Gagnlegar upplýsingar

Notist í leggöng, helst útafliggjandi fyrir svefn. Þvo skal hendur fyrir notkun. Endi túpusprotans er snúinn af. Allur túpusprotinn er settur inn í leggöng þar sem túpan er tæmd alveg og henni haldið samanklemmdri á meðan sprotinn er dreginn út. Ein túpa er notuð daglega í minnst 7 daga, í alvarlegri tilfellum í allt að 21 dag. Til að viðhalda verkuninni er ráðlagt að nota Smaronia þriðja hvern dag eftir það eða eftir þörfum. Sumar konur upplifa vægan sviða í upphafi meðferðar sem hverfur þegar líður á meðferðina. Engar þekktar milliverkanir eru við lyf.

 

*Rannsóknir sýna að silfurjónir í SIAB sambandinu frásogast ekki um húð, hvorki heila húð né rofna. Varan inniheldur 0.007% míkrósilfurjónir.

 

.

 

 

Byggt á 0 umsögnum

0.00 Á heildina litið
0%
0%
0%
0%
0%
Vertu fyrstur til að skrifa umsögn um „Smaronia“

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Write a review

Umsagnir

Það eru engar umsagnir ennþá.

Loka Karfan mín
Loka Óskalisti
Close Nýlega skoðað
Loka
Loka
Flokkar
Karfan mín
Karfan er tóm
Byrjum að versla!
Byrjaðu að versla
0