Vísindin á bak við Sefitude: Svona virkar garðabrúðurót (Valerian) á taugakerfið

Í nútímasamfélagi er „alltaf kveikt“ á okkur. Við erum með áreiti í vasanum, kröfur í vinnunni og langan verkefnalista heima. Þegar við loksins leggjumst á koddann á hugurinn það til að fara á flug. Margir leita þá í náttúrulegar lausnir eins og garðabrúðurót (e. Valerian), sem er virka efnið í Sefitude.

Hvað er valerian og hvernig virkar það?

Valerian hefur verið notað í aldaraðir sem náttúruleg leið til að draga úr spennu og bæta svefn. Ólíkt mörgum öðrum lausnum, þá virkar valerian með því að styðja við náttúrulega ferla líkamans.

Samkvæmt klínískum rannsóknum virkar valerian með því að auka magn boðefnisins GABA í heilanum. Meginhlutverk GABA er að draga úr spennu í taugafrumum og þannig kemur ró yfir hugann, kvíði og vöðvastífleiki minnkar. Þessi líffræðilega virkni Sefitude styður við náttúrulegan svefn á nokkra vegu:

  • Fljótari að sofna: Þú losnar við að velta þér klukkustundum saman í rúminu þar sem ró færist yfir hugann.
  • Betri svefngæði: Valerian hjálpar til við að viðhalda dýpri og samfelldari svefni án þess að trufla eðlilega svefnhringrás.
  • Ferskleiki að morgni: Ólíkt mörgum hefðbundnum svefnlyfjum, hafa rannsóknir sýnt að valerian veldur ekki sljóleika eða timburmönnum daginn eftir, svo þú vaknar endurnærð(ur) í stað þess að finna fyrir „þoku“ í höfðinu.

Hvernig hjálpar Sefitude gegn streitu og kvíða?

Sefitude hentar ekki aðeins þeim sem eiga erfitt með að sofna á kvöldin. Þar sem Valerian virkar eins og „bremsa“ á taugakerfið getur Sefitude hjálpað við að róa taugarnar. Með því að sefa miðtaugakerfið verður auðveldara að rjúfa vítahring neikvæðra hugsana og áhyggja sem oft fylgja streitu. Margir nota því Sefitude yfir daginn til að halda ró í streituvaldandi aðstæðum, minnka kvíða og takast á við krefjandi verkefni af yfirvegun.

 

Ráð fyrir betri hvíld

Til að fá sem mest út úr Sefitude er gott að tengja notkunina við góðar venjur:

  • Tímasetning: Taktu Sefitude um 30–60 mínútum fyrir svefn.
  • Skjálaus tími: Minnkaðu blátt ljós frá símanum á sama tíma og þú tekur töfluna.
  • Reglusemi: Jurtir eins og valerian virka oft best þegar þær eru teknar reglulega yfir ákveðið tímabil. Frásog í líkamanum er hægar og hámarksstyrkur virka efnisins byggist upp yfir tíma og því er mælt með samfelldri notkun í 2-4 vikur til að meta full áhrif lyfsins.

Af hverju að velja Sefitude?

„Notkun [lyfseðilsskyldra] svefnlyfja eykur hættu á slysum, sérstaklega föllum og beinbrotum hjá eldra fólki en í þeim hópi eykst hættan tvöfalt. Notkun þessara lyfja fylgir einnig aukin hætta á bráðu ruglástandi og minnistruflunum, einkum hjá eldra fólki.“ (Heimild: Læknablaðið 2025 – www.laeknabladid.is/media/2025-06/u01.pdf) Því velja margir að prófa mildari, náttúrulegri leið fyrst. Sefitude er byggt á traustum grunni jurtalyfja sem nútímavísindi hafa staðfest að virki.

Viltu prófa náttúrulega leið að betri hvíld?

Óþægindi við kynlíf – algengara en þú heldur
Getur jurtalyf virkað eins og Sobril við svefnleysi?
Karfan mín
Óskalisti
Nýlega skoðað
Flokkar
Karfan mín
Karfan er tóm
Byrjum að versla!
Byrjaðu að versla
0