Sendiherra Kanada heimsótti Saga Natura
Starfsfólk Saga Natura tók vel á móti Jeanette Menzies, sendiherra Kanada á Íslandi og Xavier Rodriguez, Trade Commissioner. Kanadíski sendiherrann kynnti sér starfsemi Saga Natura bæði hérlendis og erlendis. Ræddir voru möguleikar á enn meiri landvinningum og þá til Kanada en Saga Natura selur nú þegar formúlur sínar til 9 landa víðs vegar um heiminn.