SagaPro 30 hylki – Áskrift

Frá: 1.986 kr. / mánaðarlega

Veldu áskrift:
+


Fæðubótarefni

Rannsóknir benda til að SagaPro dragi úr tíðni þvagláta hjá þeim sem eru með litla eða minnkaða blöðrurýmd. Ef þú pissar 6-8 sinnum á dag þá er líklegt að þú sért með ofvirka þvagblöðru og gæti SagaPro bætt lífsgæðin þin. Notendur SagaPro eru iðulega fólk með ofvirka blöðru og þjást af tíðum þvaglátum.

SagaPro er íslensk náttúruvara sem inniheldur handtínda íslenska hvönn. Hvönn hefur verið ein merkasta lækningajurtin í Norður-Evrópu í mörg hundruð ár. SagaPro fækkar tíðum þvaglátum með því að hjálpa þvagblöðrunni að slakna og fyllast betur fyrir hverja tæmingu.

Varan er klínískt rannsökuð og hefur í gegnum árin sannað virkni sína og bætt lífsgæði fjölda einstaklinga. Ath. varan hefur engar aukaverkanir.

Fækkaðu salernisferðunum
Notendur SagaPro hafa tekið 1-2 töflur fyrir svefninn til að koma í veg fyrir eða fækka salernisferðum að nóttu til. Tíð þvaglát valda jafnan mikilli truflun á nætursvefni og finna margir mun á gæðum svefnsins eftir að inntaka hefst á SagaPro. Jafnframt hafa lífstílshópar í auknum mæli verið að taka SagaPro til að fækka salernisferðum á meðan áhugamálin eru stunduð að kappi. Þetta á við t.d. hlaupara, golfara, hjólreiða – og göngufólk.

SagaPro er oft tekið til þess að:

  • Bæta svefn með því að fækka salernisferðum á nóttu
  • Fækka salernisferðum í löngum göngum, hjólreiðum, golfi og skíðum
  • Bæta lífsgæði hjá einstaklingum með ofvirka þvagblöðru
  • Getur dregið úr bólgum

Innihald og notkun

Innihald: Hrísgrjónamjöl, SagaPro® hvannarlaufa extract, bambus extract, magnesium sterat, hylki úr jurtabeðmi (HPMC).

Ráðlagður daglegur neysluskammtur: 1-2 hylki á dag, yfir daginn eða fyrir svefn eftir þörfum.
Eitt hylki inniheldur:
SagaPro®: 100 mg
Mælt er með að taka 2 hylki fyrstu þrjá dagana þegar byrjað er að nota SagaPro.

Notkun
Við mælum með 1-2 töflum og er einstaklingsbundið á hve stuttum tíma virknin kemur fram. Fólk hefur sagst merkja áhrif frá allt niður í fimm daga frá upphafi notkunar. Margir finna ekki fyrir breytingu fyrr en eftir lengri tíma, en fjörutíu daga skammtur á að nægja til að taka allan vafa um hvort SagaPro gagnast eða ekki. Rétt er að leita læknis ef um tíð þvaglát er að ræða því orsakir fyrir þeim geta verið margvíslegar. Þetta á sérstaklega við um karlmenn.

Pakkningarstærð: 30 hylki.

Geymist á þurrum og svölum stað þar sem börn ná ekki til.

Ekki er ráðlagt að neyta meira af vörunni en ráðlagður daglegur neysluskammtur segir til um.

Fæðubótarefni koma ekki í stað fjölbreyttrar og hollrar fæðu.

Byggt á 0 umsögnum

0.00 Á heildina litið
0%
0%
0%
0%
0%
Vertu fyrstur til að skrifa umsögn um „SagaPro 30 hylki – Áskrift“

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Write a review

Umsagnir

Það eru engar umsagnir ennþá.

Vörunúmer: 20530 Flokkur:
Loka Karfan mín
Loka Óskalisti
Close Nýlega skoðað
Loka
Loka
Flokkar
Karfan mín
Karfan er tóm
Byrjum að versla!
Byrjaðu að versla
0