Íslenskt Astaxanthin

(umsögn viðskiptavina 1)

3.023 kr.

Þú færð 20% afslátt ef þú gerist áskrifandi

Smelltu hér til að kynna þér málið

Íslenskt astaxanthin er oft tekið til þess að:

  • Vernda húðina gegn útfjólubláum geislum sólar
  • Viðhalda raka húðarinnar
  • Minnka bjúg og bólgur
  • Auka úthald
  • Fá betri endurheimt
+


Íslenskt Astaxanthin – Fæðubótarefni

Íslenskt Astaxanthin inniheldur astaxanthin og E-vítamín. Astaxanthin er eitt öflugasta andoxunarefni náttúrunnar, 6.000 sinnum sterkara en C-vítamín, og ver frumuhimnuna gegn oxun.

Astaxanthin hefur verið rannsakað í yfir 50 klínískum rannsóknum og benda rannsóknir til að astaxanthin verji húðina gegn útfjólubláum geislum sólar og dragi þar með úr ótímabærri öldrun húðarinnar. Talið er að húðin þorni síður og hrukkist eins og gerist hjá flestum þegar aldurinn færist yfir. Rannsóknir hafa einnig sýnt fram á jákvæð áhrif á úthald, orku og endurheimt. Astaxanthin er talið auka þrek og vöðvamyndun við æfingar auk þess sem það er talið veita betri endurheimt vöðva eftir átök. Astaxanthin getur einnig virkað vel á bólgur í liðum og styrkt augnheilsu. E-vítamínið stuðlar að því að verja frumur fyrir oxunarálagi.

Astaxanthinið okkar kemur frá íslenska fyrirtækinu Algalíf, sem staðsett er í Reykjanesbæ. Algalíf er dyggur samstarfsaðili Saga Natura í þróun á virkum náttúruefnum í hæsta gæðaflokki. Astaxanthin er unnið úr algea þörungum með hreinu íslensku vatni og orku.

Hægt er að gerast áskrifandi með því að smella hér.

Innihald og notkun

Innihald: Sólblómaolía, AstaKey® Astaxanthin-rík olía úr smáþörungum (Haematococcus pluvialis), perla (breytt sterkja, (óerfðabreytt), glýserín, karragenan, natríum karbónat), E-vítamín (náttúrulegt tókóferól).

Ráðlagður daglegur neysluskammtur: 2 perlur á dag með mat.

2 perlur innihalda:
AstaKey® Astaxanthin: 8 mg
E-vítamín: 8 mg*
*67% af næringarviðmiði fyrir fullorðna.

Pakkningarstærð: 60 stk.

Geymist á þurrum og svölum stað þar sem börn ná ekki til.
Engir þekktir ofnæmisvaldar í vörunni.

Ekki er ráðlagt að neyta meira af vörunni en ráðlagður daglegur neysluskammtur segir til um.
Fæðubótarefni koma ekki í stað fjölbreyttrar og hollrar fæðu.

Barnshafandi konum, konur með barn á brjósti, börn undir 18 ára aldri og fólk með sjúkdóma er ávallt ráðlagt að leita álits læknis eða annars sérfræðings áður en tekin eru inn fæðubótarefni.

 

Byggt á 1 umsögnum

5.00 Á heildina litið
100%
0%
0%
0%
0%
Bæta við umsögn

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Write a review

1 umsögn fyrir Íslenskt Astaxanthin

  1. Svanfríður

    Tek Astaxanthin allan ársins hring, húðin mín er mikið sterkari, brenn mikið síður og verð fallega brún. Loksins!

Loka Karfan mín
Loka Óskalisti
Close Nýlega skoðað
Loka
Loka
Flokkar
Karfan mín
Karfan er tóm
Byrjum að versla!
Byrjaðu að versla
0